TRE® Viltu losna við verki, streitu og spennu úr líkamanum, og ná góðri hvíld.

Schedule

Tue, 08 Sep, 2026 at 05:30 pm

UTC+00:00
Location

Yogavin | Reykjavík, RE

Advertisement
Hópnámskeið 6 vikur: TRE® (Tension, Stress & Trauma Release) er (somatic practice) líkamsmiðuð aðferð til að að losa um spennu, streitu og áföll sem liggja djúpt í vöðvum og bandvef líkamans.
Helstu áhrif:
Minnkar verki og spennu í líkamanum (öxlum, baki, mjöðmum)
Finnur fyrir slökun, ró og létti í líkamanum.
Dregur úr kvíða og streitu.
Eykur orku, þrek og bætir svefn.
Þriðjudagar 8., 15., 22., 29., sept. og 6., 13 október 2026
Kl. 18.30–20.00 (90 mín.)
Yogavin, Grensásvegi 16, 108 Rvk.
Verð 39.900 kr
Með því að virkja náttúrleg viðbrögð líkamans, í öruggu og stýrðu umhverfi, er líkaminn hvattur til að ná aftur fyrra jafnvægi. Hver sem er getur lært TRE — æfingarnar eru einfaldar og aðlagað að líkama og hreyfigetu hvers og eins. TRE er sennilega ólíkt öllu sem þú hefur upplifað áður.
Leiðbeinandi: Svava Brooks, vottaður TRE leiðbeinandi síðan 2017.
„Þegar ég vaknaði morguninn eftir fyrsta dag námskeiðsins tók ég strax eftir að ég var miklu afslappaðri en venjulega og djúpstæð kyrrð og ró var innra með mér … Þessi frábæra tækni er verkfæri sem ég mun nýta mér í framtíðinni.“ — Guðrún Vilhjálmsdóttir
Fleiri umsagnir á skráningarsíðunni.
Skráning: sendu tölvupóst með kt. til [email protected]
Ert þú að takast á við stór áföll, kulnun eða „burnout“? þá er mælt að koma í stutt spjall eða með einkatíma áður en þú skráir þig á hópnámskeið.
Umsagnir og nánari upplýsingar: svavabrooks.com/tre-namskeid-yogavin
Bóka einkatíma eða frítt 20 mín. spjall: svavabrooks.com/tre
Býrð úti á landi? Netnámskeið: svavabrooks.com/tre_a_netinu
TRE er leið til að losa um spennu, streitu og áföll sem liggja djúpt í vöðvum og vefjum líkamans. Með því að virkja náttúrleg viðbrögð líkamans, í öruggu og stýrðu umhverfi, er verið að hvetja líkamann til að ná aftur fyrra jafnvægi. Hver sem er getur lært að nota TRE. Æfingarnar eru einfaldar og hægt að aðlaga þær að líkama og hreyfigetu hvers og eins. TRE er sennilega ólíkt öllu sem þú hefur upplifað áður.
Skráning sendu tölvupóst með kt. til Svövu Brooks
Netfang. [email protected]
Umsagnir og nánari upplýsingar hér: https://www.svavabrooks.com/tre-namskeid-yogavin
Ef þú ert að takast á við stór áföll í lífinu, kulnun, eða "burnout" þá mæli ég með einkatíma áður en þú skráir þig á hópnámskeið.
Umsögn: "Sá þetta TRE námskeið auglýst fyrir tilviljun og það vakti athygli mína þar sem ég hafði stuttu áður velt því fyrir mér hvort ákveðnir verkir, til margra ára, spenna, streita og kvíði væru eitthvað sem ég hreinlega geymdi í líkamanum og gætu m.a. tengst áföllum. Ég mætti því forvitin á þetta námskeið, en ekki með neinar væntingar, ákvað samt að vera opin fyrir þess og gefa þessu tækifæri. Það virkaði vel á mig hvað leiðbeinandinn, hún Svava var einlæg, tilgerðarlaus og kom efninu skýrt og áreynslulaust frá sér. Þegar ég vaknaði morgunin eftir fyrsta dag námskeiðsins, tók ég strax eftir að ég var miklu afslappaðri en
venjulega og djúpstæð kyrrð og ró var innra með mér. Ég var líka með mun minni verki í líkamanum allan þennan dag. Ég mætti því full af áhuga í næsta tíma og heyrði þar fleiri segja frá svipaðri reynslu. Þessi frábæra tækni er verkfæri sem ég mun nýta mér í framtíðinni og er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast TRE." -Guðrún Vilhjálmsdóttir
Advertisement

Where is it happening?

Yogavin, Grensásvegur 16, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Svava Brooks, Certified TRE Provider
Host or PublisherSvava Brooks, Certified TRE Provider

Ask AI if this event suits you