LÆRÐU AÐ HLUSTA Á TAUGAKERFIÐ

Schedule

Sat, 05 Sep, 2026 at 12:00 pm

UTC+00:00
Location

Tungufell | Reykjavík, RE

Advertisement
Taugakerfið talar ekki í setningum. Það talar í tilfinningum, líkamsviðbrögðum, spennu, þreytu, tengslum, löngun, mörkum og þögn. Á þessu námskeiði lærum við að hlusta.
Námskeiðið er fyrir konur á öllum aldri sem vilja staldra við og læra að þekkja tungumál taugakerfisins..
Þetta er ferðalag inn á við þar sem lögð er áhersla á að skapa öruggt rými fyrir það sem býr innra með hverjum einstaklingi.
Í hverjum tíma er fræðsla, tækifæri til að staldra við, upplifa og tjá sig á margskonar máta.

Námskeiðið er fjögur skipti, fjóra tíma í senn. Innifalið er handbók með fræðslu og verkefnum - Takmarkaður fjöldi.

Skráning hafin - takmarkaður fjöldi.

[email protected] eða [email protected]
Skráning á sér stað eftir að greitt er staðfestingargjald: 8000.

Athugið að mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði við námskeið af þessu tagi. Við hvetjum þátttakendur til að kanna möguleika á styrk hjá sínu stéttarfélagi.

Verð: 64.000

Um okkur:
Ragnhildur Birna Hauksdóttir: er fjölskyldufræðingur og leikskólakennari og hefur menntað sig í áfallafræðum Janine Fisher Robert Rhorton og síðast Gabor Mate. Hún hefur einnig að baki ársnám í búddískum íhugunarfræðum sem byggja einnig á taugavísindum. Hún hefur áralanga reynslu af því að vinna með einstaklinga, fjölskyldur og hópa. Hún heldur úti hlaðvarpinu "Hvar erum við stödd?"
"Að læra að þekkja taugakerfið er fyrir mig dýrmætasta ferðalag sem ég hef lagt í. Áföll, kulnun og rof hafa leitt mig inn í vinnu sem byggist fyrst og síðast á heiðarleika, við sjálfa mig og aðra. Þakklæti er það sem eftir situr og hlakka ég til að fá að deila þessu ferðalagi með þeim sem það kallar á.”
Íris Arnardóttir er náms- og starfsráðgjafi og leikskóla kennari, núvitundarkennari m.a. frá Bangor Univeristy og hefur lokið sjö námskeiðum í CranioSacral Therapy. Á síðast ári lauk hún einnig námskeiði í Psychedelic therapy assistant frá Hjartasetrinu og er nú þar aðstoðarkennari á því námi. Nýverið lauk hún árs námi hjá Gabor Maté í áfallafræðum og er Trauma informed Therapist.
“Innri viska er eitthvað sem ég hef tileinkað mér sem hornsteininn í minni innri vinnu, fyrir mér er viskan höndin sem leiðir mig heim í sjálfið. Sjálf hef ég upplifað kulnun, áfallastreitu og það að týna sjálfri mér. Leiðin heim er fyrir mig leiðin að hinu sanna sjálfi sem veit allt, skilur allt og hefur kennt mér að sýna samkennd í eigin garð.”

#Lærðuaðhlustaátaugakerfið
#Innriviska
#Hvarerumviðstödd?
#RBirna

Advertisement

Where is it happening?

Tungufell, Reykjavík, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
RBirna
Host or PublisherRBirna

Ask AI if this event suits you