TRE Framhaldsnámskeið — haust/vetur 2026-2027

Schedule

Tue, 08 Sep, 2026 at 07:30 pm

UTC+00:00
Location

Yogavin | Reykjavík, RE

Advertisement
TRE byrjendanámskeiðið var bara það — bara byrjunin.
TRE Framhaldsnámskeið! Með bandvefslosun, öndun, tónlist og örugga handleiðslu til að fara dýpra.
Þegar við erum búin að ná góðum tökum á aðferðinni, sjálfstjórn og öryggi getum við farið dýpra. Þessi hópur mun hittast vikulega í vetur, frá september til júní 2027. Minni fókus er á fræðin á bak við TRE og meiri tími fer í að vinna með bandvef, þindaröndun, skjálftann og slökun.
TRE er einfalt en öflugt verkfæri til að vinna með daglega og djúpa, langvarandi spennu og streitumynstur. Fyrir flesta eru þessi mynstur líkaminn og taugakerfið í vörn. Þessum mynstrum breytum við ekki á einni viku eða nokkrum — það getur tekið fleiri vikur og jafnvel mánuði að breyta þeim.
Þessi hópur er fyrir einstaklinga sem finna sig tilbúna að mæta líkamanum þar sem hann er. Æfa sig í að hlusta, skynja og vera með líkamanum — opin og forvitin — þegar hann sleppur spennu og tilfinningum sem hann hefur hugsanlega geymt lengi.
Helstu áhrif:🔹 Minnkar verki og spennu í líkamanum 🔹 Finnur fyrir slökun, ró og létti í líkamanum🔹 Dregur úr kvíða og streitu🔹 Eykur orku og þrek, bætir svefn
Með reglulegri ástundun yfir tíma upplifa margir dýpri breytingar: meiri seiglu í streituvaldandi aðstæðum, skýrari tengingu við eigin líkama og tilfinningar, og aukna getu til að róa sig sjálf/ur þegar á reynir. Þetta er ferli sem byggist upp smám saman, tíma eftir tíma.
Með því að virkja náttúrleg viðbrögð líkamans, í öruggu og stýrðu umhverfi, er líkaminn hvattur til að hægja á sér, ná betri hvíld og endurheimt.
📅 Þriðjudagar kl. 19:30–21:00 (90 mín.)
🗓️ Byrjum 8. september — júní 2027
📍 Yogavin, Grensásvegi 16, 108 Reykjavík.
✨ Lokaður hópur, takmarkað pláss
Spurningar? Sendu mér DM.
Áhugasamir sendu kennitölu á [email protected]
Ég staðfesti verð fyrir skráningu.
Leiðbeinandi Svava Brooks. Vottuð síðan 2017 og TRE-þjálfari síðan 2025.
TRE® (Tension, Stress & Trauma Release) er líkamsmiðuð aðferð (somatic practice) til að losa um spennu, streitu og áföll sem liggja djúpt í vöðvum og bandvef líkamans.
Námskeið fyrir byrjendur eru haldin reglulega.Nánari upplýsingar um TRE og bandvefslosun hér. https://www.svavabrooks.com/tre
Advertisement

Where is it happening?

Yogavin, Grensásvegur 16, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Svava Brooks, Certified TRE Provider
Host or PublisherSvava Brooks, Certified TRE Provider

Ask AI if this event suits you