Nornakakó - ferðalag.....
Schedule
Sun Nov 09 2025 at 07:30 pm to 09:00 pm
UTC+00:00Location
Yogasmiðjan/Heilsurækt | Reykjavík, RE
Innra ferðalag með hjálp nidra og dáleiðslu, dásamlegt slökunarferðalag með þeim tilgangi að efla næmni og tengingu við innsæið.
Við nýtum okkur ceramóníu kakó og ilmkjarnaolíur, shammaníska trommu og kristalsskálar .......
Við drekkum 100% hreint kakó frá Guatemala til að auka slökun líkamans og tengingu inn á við. Kakóið sem við drekkum frá regnskógum Guatemala er svokallað “ceremonial grade cacao” og sannkölluð ofurfæða. Kakó er blóðflæðisaukandi, hefur jákvæð áhrif á úthald og orku, minnkar bólgur, ýtir undir framleiðslu á gleðiboðefninu serótónín, lækkar streituhormónið kortisól og örvar vellíðunarstöðvar í heilanum og framleiðslu á endorfíni.
Með iðkun yoga nidra er hægt að ná mjög djúpri slökun með vakandi vitund, á milli svefns og vöku
þar sem líkaminn hvílist á meðan undirmeðvitundin er leidd í djúpt slökunarástand handan skilningarvitanna þar sem engin streita býr og fullkomin friður er.
Yoga nidra getur losað um líkamlega, andlega og tilfinningalega spennu en einn klukkutími af yoga nidra veitir hvíld á við fjögurra tíma svefn. Yoga nidra hefur meðal annars reynst vel í að draga úr streitu og bæta svefn.
Dáleiðslan fær undirvitundina til að opna innsæisstöðvar eins og hver og ein vill.
Takmarkað pláss er í boði og því nauðsynlegt að bóka fyrirfram
Auk þess að nýta himmneskt kakó til að hjálpa okkur að fara dýpra er í boði hrein ilmkjarnaolía sem hefur heilandi eiginleika og fyllir þig því sem þú þarfnast. Olíurnar eru algerlega hreinar og lífrænar enginn skaðleg efni.
Kristín Snorradóttir leiðir stundina, hún er menntaður jógakennari, yoga nidrakennari, yoga therapisti. Auk þess er hún í shammanísku námi sem og hefur heilað um langt skeið.
Stundinn er á Bíldshöfða 16 á 2 hæð í sal Yogasmiðjan/Heilsurækt
kostar 4500 kr
Skráning á [email protected]
Lifðu í gleði og kærleika<3 Sýna minna
PS hvet allar til að koma með eitthvað í nornahringin til þess að setja ásetning eða senda jákvæða orku <3
Where is it happening?
Yogasmiðjan/Heilsurækt, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:







