Bríet, blómin og Hannes
Schedule
Sat Jan 24 2026 at 02:00 pm to 03:00 pm
UTC+00:00Location
Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE
Advertisement
Dagskráin „Bríet, blómin og Hannes“ var flutt í Hannesarholti - Hljóðbergi 27. september til heiðurs Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, kvenréttindakonu, blaðamanni og ritstjóra Kvennablaðsins á afmælisdegi hennar, og verður nú endurtekið í janúar. Fjallað verður um samstarf Hannesar Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands og Bríetar, ólíka æsku þeirra og kjör og hvernig lífsþræðir þeirra spunnust saman, meðan bæði lifðu. Samstarf þeirra hafði mikil áhrif á þróun kvenréttinda hér á landi. Sá sögulegi sannleikur má ekki gleymast.En hvaða blóm eru þetta ? - Það færðu að vita ef þú mætir í Hannesarholt þann 24. eða 28. janúar. Veitingahúsið er opið frá kl.11.30 og má njóta veitinga á undan viðburði.
Sýningin er samvinnuverkefni Leikhúslistakvenna 50 + og Hannesarholts og er styrkt af Reykjavíkurborg
Dagskráin er um eina klst.
Þáttakendur
Ásdís Skúladóttir leikstjóri, skrifaði handritið ásamt hópnum
Edda Þórarinsdóttir leikkona
Helga E. Jónsdóttir leikkona
Þórey Sigþórsdóttir leikkona
Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari
Advertisement
Where is it happening?
Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland, Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.


















