KAP með Lifandi Tónferðalagi & Cacao ✨
Schedule
Wed Jan 21 2026 at 08:00 pm to 10:00 pm
UTC+00:00Location
REYR Studio | Reykjavík, RE
Advertisement
KAP með lifandi tónferðalagi & Cacao ✨Komdu að stilla "aðal" hljóðfærið þitt, líkama og orku, inn í nýtt ár ✨
Stundin hefst á hjartaopnandi Cacao sem hjálpar þér að setjast í hjartaorkuna þína og slökunarástand inn í líkamann þinn.
Við notum 100% hreint, lífrænt og heilsubætandi Cacao frá Perú.
KAP er Djúp Orkuvinna ✨
Við vinnum með þína innri orku, hjálpum þér að komast nær kjarnanum. Mikil sjálfsvinna og heilun á sér stað í þessum tímum. Ákveðið hugleiðslu ástand sem hjálpar þér að vinna úr streitu, orkuleysi, vanlíðan, bætir svefn, eykur sköpun og þannig má lengi telja.
Kundalini lífskrafturinn býr innra með okkur öllum.
Fólk upplifir allt milli þess að finna fyrir djúpslökun, losa um allskonar tilfinningar. Getur fundið fyrir titring og þörf fyrir hreyfingu. En flestir eiga það sameiginlegt að nærast af þessum tíma, tengjast betur sjálfum sér og líða almennt mun betur.
KAP er smjör fyrir taugakerfið þitt ✨
Við hefjum studnina oft á öndunaræfingum eða hristing eftir því hvað við á og til þess að keyra orkuna í gang. Þú liggur á dýnu í rúmlega klukkutíma.
Í orkuvinnunni snertum við nokkra orkupunkta líkamans en vinnum líka með orkuna án snertinga fyrir ofan ykkur. Það má biðja um enga snertingu ef það hentar þér ekki.
Í tímanum er mögnuð lifandi tónlist og spilar hún stórt hlutverk á ferðalaginu þar sem tónarnir smjúga inn í orkuna þína og líkama og hreyfa við því sem þú þarft á að halda.
Komdu í þægilegum fatnaði og með augngrímu eða augnhvílu með þér (við erum einnig með augngrímur til láns).
Verð: 9500 kr
Þú tryggir þér pláss með því að kaupa miða í "tickets"
Hlökkum til að taka á móti ykkur ❤
Danni leiðir lifandi tónferðalag, Kolbrún & Lovísa leiða KAP orkuvinnu.
Viðburðurinn er haldinn í REYR Studio Fiskislóð 31 B, gengið inn bílaþvottastöðvarmegin.
Advertisement
Where is it happening?
REYR Studio, Fiskislóð 31, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.



















