Soft Strength í Swimslow - 4 vikna Pilates námskeið
Schedule
Mon Feb 23 2026 at 05:30 pm to 06:20 pm
UTC+00:00Location
Aðalstræti 9, 101 Reykjavíkurborg, Ísland | Reykjavík, RE
Advertisement
Soft Strength eru tímar þar sem þú byggir upp innri styrk með því að þjálfa djúpvöðva líkamans, og tengist mýktinni með meðvituðum hreyfingum í takt við andardráttin. Tímarnir eru 50 mínútur og byggjast á styrkjandi flæði, þar sem hver tími byrjar og endar á nokkrum mínútum í kyrrð og ró sem hjálpa huga og líkama að tengjast. Eftir hvern tíma heldurðu áfram inn í daginn með meiri kraft í líkamanum og ró í hjarta.
Andrea er lærður Pilates-kennari frá Stockholm Pilates Center og hefur kennt víða, bæði í Svíþjóð og hér á landi síðan árið 2022. Tímarnir hennar eru blanda af ró, mýkt og einbeitingu, þar sem djúpvöðvar líkamans eru virkjaðir og innri tenging nærð.
Andrea starfar einnig sem hönnuður og listrænn stjórnandi og nálgast Pilates sem leið til að tvinna saman vellíðan og fegurð. Tímarnir hennar bjóða inn í stund þar sem þú finnur fyrir innri styrk og ró — og nýtur þess að tengjast eigin krafti í fallegu rými.
Swimslow er nýtt vellíðunarstúdíó í hjarta borgarinnar, þar sem vellíðan, hönnun og fegurð mætast á einstakan máta. Heitt jurtate er í boði eftir hvern tíma þar sem þú getur notið þess að dvelja í fögru og rólegu umhverfi eftir góða stund á dýnunni.
Swimslow, Aðalstræti 9
Mánudaga & Fimmtudaga
08.30 - 09.20
17.30 - 18.20
Verð: 25000 kr
Skráning:
https://www.swimslow.com/collections/classes-events
*Ný námskeið hefjast um leið og þeim fyrri lýkur og hægt er að hoppa inn hvenær sem er, svo lengi sem pláss leyfir.
*Hægt er að blanda saman morgun- og síðdegistímum.
Advertisement
Where is it happening?
Aðalstræti 9, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Aðalstræti 9, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.






