Óperuveisla með Ólafi Kjartani
Schedule
Thu Apr 03 2025 at 07:30 pm to 09:30 pm
UTC+00:00Location
Eldborg, Harpa, Austurbakka 2 | Reykjavík, RE
Advertisement
Ólafur Kjartan Sigurðarson, staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hefur farið með himinskautum í heimi óperunnar á síðustu árum og sér ekki fyrir endann á sigurgöngu hans þar. Á undanförnum misserum hefur Ólafur komið fram í burðarhlutverkum á helstu sviðum óperuheimsins; í La Scala óperunni í Mílanó og á Wagnerhátíðinni í Bayreuth í Þýskalandi.Hér býður Ólafur Kjartan til sannkallaðrar veislu — þetta er óperugala af bestu gerð þar sem glæsilegir gestir, söngvararnir Kristín Anna Guðmundsdóttir, Gunnar Björn Jónsson og Kristín Sveinsdóttir bregða sér í hin ýmsu hlutverk og syngja með Ólafi og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Um tónsprotann heldur Bjarni Frímann Bjarnason.
Þessir tónleikar eru fullir af ástríðu, örlagaþrungnum aríum og dýrðlegum dúettum úr helstu perlum óperunnar, t.d. eftir Verdi, Puccini, Giordano og Bizet — ómissandi fyrir þá sem unna fögrum söng og óperutónlist.
*Tónleikarnir eru u.þ.b. tvær klst. með tuttugu mínútna hléi.
Efnisskrá
Aríur og óperuforleikir
Hljómsveitarstjóri
Bjarni Frímann Bjarnason
Einsöngvarar
Ólafur Kjartan Sigurðarson
Gunnar Björn Jónsson
Kristín Anna Guðmundsdóttir
Kristín Sveinsdóttir
Kór Langholtskirkju
Mótettukórinn
Kórstjórar
Magnús Ragnarsson
Stefan Sand
Tónleikakynning » 3. apr. kl. 18:00
//
Ólafur Kjartan Sigurðarson, Artist in Residence with the Iceland Symphony Orchestra in the current season, has been scaling the heights of the opera world in recent years, with no end in sight. In recent seasons, Ólafur has appeared in leading roles on the biggest stages of the opera world; at La Scala Opera House in Milan and at the Wagner Festival in Bayreuth, Germany.
Here, Ólafur Kjartan invites you to a truly grand soirée — this is an opera gala of the highest caliber, where distinguished guests, the singers Kristín Anna Guðmundsdóttir, Gunnar Björn Jónsson and Kristín Sveinsdóttir, take on various roles and perform alongside Ólafur and the Iceland Symphony Orchestra. Conducting the performance is Bjarni Frímann Bjarnason.
This concert is filled with passionate arias and glorious duets from the greatest operatic gems, such as those by Verdi, Puccini, Giordano and Bizet — a must for those who love beautiful singing and operatic music.
*The concert is approximately 2 hours, 20 minute intermission included.
Program
Opera arias and overtures
Conductor
Bjarni Frímann Bjarnason
Soloists
Ólafur Kjartan Sigurðarson
Gunnar Björn Jónsson
Kristín Anna Guðmundsdóttir
Kristín Sveinsdóttir
Langholtskirkja Choir
The Motet choir
Choir conductors
Magnús Ragnarsson
Stefan Sand
Advertisement
Where is it happening?
Eldborg, Harpa, Austurbakka 2, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays: