„Skjól í skóginum“ í Ráðhúsinu á Menningarnótt

Schedule

Sat Aug 22 2026 at 01:00 pm to 06:00 pm

UTC+00:00
Location

Ráðhús Reykjavíkur | Reykjav, RE

Advertisement
Velkomin í heimsókn í skóginn í Ráðhúsinu á Menningarnótt!
Skógræktarfélag Reykjavíkur er gestur Reykjavíkurborgar á Menningarnótt, í tilefni 125 ára afmælis félagsins.
Áhersla verður á notalega skógarstemningu og að kynna fólk fyrir skóginum og öllu því sem hann býður upp á.
Dagskrá hefst upp úr klukkan 13, með ávarpi Hildar Björnsdóttur borgarstjóra sem býður félagið velkomið sem gest Menningarnætur. Eftir það verður ljósmyndasafn Skógræktarfélags Reykjavíkur afhent Ljósmyndasögusafni Reykjavíkur til varðveislu. Í safninu eru um tíu þúsund myndir úr starfi félagsins. Boðið verður upp á skógarköku.
Dagskrá stendur yfir milli 13 og 18. Yfir daginn verður skógarstemning í Ráðhúsinu og
Skógarsturta/ilmmynd eftir Sonju Bent
Ljósmyndasýningin „Frá rofabörðum til borgarskóga“
Tálgun
Trjábolir sagaðir í bekki með keðjusög
Kynning á íslenskum viðarafurðum úr Heiðmörk
Íslenskt birki. Saga, þróun og framtíð. Þorsteinn Tómasson plöntuerfðafræðingur sýnir mismunandi yrki og ræðir við gesti
Skógarvörðurinn í Heiðmörk verður á staðnum og ræðir við gesti
Stafræn myndasýning „Svipmyndir úr starfi Skógræktarfélags Reykjavíkur“

Um 13 Ávarp borgarstjóra, afhending ljósmyndasafns og skógarveitingar
14 Benedikt Erlingsson – Hugvekja
14:30 Leiðsögn um ljósmyndasýninguna „Frá rofabörðum til borgarskóga“
15:00 Kvæðakórinn Iðunn
15:30 Leiðsögn um ljósmyndasýninguna „Frá rofabörðum til borgarskóga“
16:00 Þóranna Björnsdóttir
Um 17 Mugison
Frá 14:30 til 16:30 býður Þórdís Sigmarsdóttir upp á leiðsögn um tálgun. Hægt er að setjast og tálga undir handleiðslu hennar. Börn eru velkomin í fylgd forráðamanna en ekki er boðið upp á barnapössun.
Við hlökkum til að sjá ykkur á Menningarnótt!
Advertisement

Where is it happening?

Ráðhús Reykjavíkur, Tjarnargata 11, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Sk\u00f3gr\u00e6ktarf\u00e9lag Reykjav\u00edkur
Host or PublisherSkógræktarfélag Reykjavíkur

Ask AI if this event suits you