Færeysk tónlistarveisla | Harpa býður heim

Schedule

Sat Aug 22 2026 at 04:00 pm to 06:00 pm

UTC+00:00
Location

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre | Reykjav, RE

Advertisement
Söngvaskáldið Lyon Hansen, þungarokkhljómsveitin Tunghoyrt og Dania O. Tausen ásamt Bartal Augustinussen koma fram í veglegri tónlistardagskrá í Kaldalóni á Menningarnótt. Dagskráin er í samstarfi við Sendiskrifstofu Færeyja á Íslandi sem hefur um árabil staðið fyrir fjölbreyttu tónleikahaldi á Menningarnótt í Hörpu þar sem margir af helstu tónlistarmönnum Færeyja hafa komið fram.
16:00 – 16:30
Lyon Hansen
Lyon Hansen hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð færeyskra þjóðlagatónlistarmanna. Hann hefur sent frá sér breiðskífurnar Lyon (2015) og Skull-Sized Kingdom (2025) auk nokkurra smáskífa. Lyon Hansen hefur hlotið mikið lof fyrir einlæga texta, næmar lagasmíðar og hljóðheim sem er hvort tveggja látlaus og áhrifamikill.
16:45 – 17:15
Tunghoyrt
Tónlist færeysku þungarokksveitarinnar Tunghoyrt er kraftmikil, tjáningarrík og grípandi en hljómsveitina skipa fjórir, kornungir Færeyingar. Hljómsveitin var stofnuð árið 2024 og sendi fyrr á þessu ári frá sína fyrstu
stuttskífu sem ber heitið ÓJÓ. Tunghoyrt skipa Bjarni Jakobsen, trommur, Erik Reynheim, bassi, Helge Greve á gítar og Jóni Strøm, söngur.
17:30 – 18:00
Dania & Bartal
Tónlistarkonan og ljóðskáldið Dania O. Tausen er margverðlaunuð og hefur hlotið mikið lof fyrir blæbrigðaríka og fíngerða tónlist sína sem og hráa og beinskeytta texta. Dania hefur sent frá sér tvær rómaðar plötur gonguteigatúnatos (2021) og ja/nei – og restin av vikuni (2023). Sú síðarnefnda hlaut verðlaunin Plata ársins á Færeysku tónlistarverðlaununum. Dania hefur komið fram víða og meðal annars hitað upp fyrir Eivør Pálsdóttur og einnig túrað með hljómsveitinni Supersport.
Færeyski gítarleikarinn og söngvaskáldið Bartal (Bartal Augustinussen) hefur starfað með hljómsveitunum Moby the Pink Pilot og Fróða og er meðlimur í dúettnum Gudrun & Bartal.
»»»»»»
A Celebration of Faroese Music
Singer-songwriter Lyon Hansen, Faroese heavy metal band Tunghoyrt, and acclaimed artist Dania O. Tausen perform in a vibrant programme of Faroese music in Kaldalón on Culture Night. The programme is presented in collaboration with the Representation of the Faroe Islands in Iceland, which has for many years curated a diverse concert series at Harpa on Culture Night, showcasing many of the Faroe Islands' leading musicians.
4:00–4:30 pm
Lyon Hansen
In recent years, Lyon Hansen has established himself as one of the leading voices in Faroese folk music. He has released the albums Lyon (2015) and Skull-Sized Kingdom (2025), as well as several singles. Hansen has earned widespread acclaim for his heartfelt lyrics, sensitive songwriting, and a musical style that is both understated and deeply affecting.
4:45–5:15 pm
Tunghoyrt
The music of Faroese heavy metal band Tunghoyrt is powerful, expressive, and compelling. Formed in 2024, the band consists of four young Faroese musicians and released its debut EP, ÓJÓ, earlier this year. Tunghoyrt features Bjarni Jakobsen (drums), Erik Reynheim (bass), Helge Greve (guitar), and Jóni Strøm (vocals).
5:30–6:00 pm
Dania & Bartal
Award-winning singer-songwriter and poet Dania O. Tausen has received widespread acclaim for her nuanced, delicate music and her raw, unflinching lyrics. She has released two highly praised albums, gonguteigatúnatos (2021) and ja/nei – og restin av vikuni (2023), the latter of which was named Album of the Year at the Faroese Music Awards. Dania has performed extensively, including as a support act for Eivør Pálsdóttir, and has also toured with the band Supersport.
For this concert, she is joined by guitarist and singer-songwriter Bartal (Bartal Augustinussen), who has long been regarded as one of the Faroe Islands' leading musicians.
Advertisement

Where is it happening?

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2,Reykjavík, Iceland, Reykjav

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Harpa t\u00f3nlistar- og r\u00e1\u00f0stefnuh\u00fas \/ Harpa Concert Hall and Conference Centre
Host or PublisherHarpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

Ask AI if this event suits you