Píanóverk Chopin

Schedule

Sat, 22 Aug, 2026 at 04:00 pm

UTC+00:00
Location

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE

Advertisement
Píanóverk 19. aldar tónsnillingsins Frederic Chopin hafa glatt hug og hjörtu tónlistarunnenda um allan heim og eiga sér sérstakan sess í verkefnaskrá píanóleikara. Á þessum tónleikum flytja fimm píanóleikarar úrval einleiksverka Chopin og má nefna Noktúrnur, Etýður, Scherzo, Ballöðu, Impromptu og Prelúdíur.
Listafólkið sem kemur fram í sal Hannesarholts á Menningarnótt eru Ásgerður Sara Hálfdanardóttir, Chadman Naimi, Matvii Levchenko, Vasyl Zaviriukha og Nína Margrét Grímsdóttir. Það er ánægjulegt að greina frá því að ungu píanóleikararnir eru nemendur Nínu Margrétar og hafa unnið til verðlauna og viðurkenninga innanlands og erlendis undanfarin ár.
Þessir Chopin tónleikar eru því einstakt tækifæri til að njóta fagurrar píanótónlistar í túlkun yngstu kynslóðar píanóleikara landsins og Nínu Margrétar, kennara þeirra til margra ára og eins reyndasta píanóleikara landsins.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir.
Advertisement

Where is it happening?

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland, Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Hannesarholt
Host or PublisherHannesarholt

Ask AI if this event suits you