Útgáfuhóf: Miðbæjarrottan í bókmenntaborg
Schedule
Sun Mar 15 2026 at 02:00 pm to 04:00 pm
UTC+00:00Location
Borgarbókasafnið | Reykjavík, RE
Advertisement
Í tilefni af útgáfu fjórðu og síðustu bókarinnar um Miðbæjarrottuna býður Skriða ungum sem öldnum á Borgarbókasafnið sunnudaginn 15. mars kl. 14. Bókin gerist í bókmenntaborginni Reykjavík en rotturnar Rannveig og Karlotta fá kort á bókasafninu sem leiðir þær af stað í gönguferð um miðbæinn. Þær komast í hann krappan þegar á vegi þeirra verða bókhneigðir kettir en rottur hafa ráð undir rifi hverju og láta ekkert stoppa sig. Með aðstoð ömmu Bardúsu og lagnarottanna geta þær frænkur klárað gönguna sem kennir þeim ýmislegt um bækur og íslenska sagnaheiminn.
Bókin kemur út á íslensku, ensku og pólsku og verða allar til sölu á góðu verði á útgáfuhófinu. Einnig verður hægt að kaupa pakka með öllum fjórum rottubókunum á svakalegu tilboðsverði. Boðið verður upp á léttar veitingar og með bókunum fylgja rottuskissubækur og litir fyrir börnin.
Advertisement
Where is it happening?
Borgarbókasafnið, Tryggvagata 15, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.


















