Persónusköpunarsmiðja með Bergrúnu Írisi
Schedule
Sun Mar 29 2026 at 01:30 pm to 02:30 pm
UTC+00:00Location
Borgabókasafn Grófinni | Reykjavík, RE
Advertisement
*English belowHvernig varð Lína Langsokkur eiginlega til? Hvað með Hundmann, Kidda Klaufa og allar hinar persónurnar sem við þekkjum úr bókum? Í smiðjunni kafar barnabókahöfundurinn Bergrún Íris í persónusköpunum og kennir þátttakendum að skapa sínar eigin sögupersónur, bæði í orðum og myndum. Um er að ræða fjölskyldusmiðju þar sem fullorðin eru hvött til þess að mæta með börnum á öllum aldri og eiga saman skemmtilega stund.
Mynd- og rithöfundurinn Bergrún Íris Sævarsdóttir er fædd árið 1985 og býr í Hafnarfirði ásamt fjölskyldu sinni. Bergrún útskrifaðist með BA gráðu í listfræði úr Háskóla Íslands 2009, lauk diplómanámi í teikningu frá Myndlistaskólanum í Reykjavík vorið 2012 og sótti sumarskóla í barnabókagerð í Anglia Rushkin, Cambridge School of Art. Bergrún Íris hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín, meðal annars Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna- og unglingabóka, Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur og Vest-Norrænu barnabókaverðlaunin.
How was Pippi Longstocking actually created? What about Dog Man, Wimpy Kid and all the other characters we know from books? In this workshop, children's book author Bergrún Íris delves into character creation and teaches participants how to create their own story characters, both in words and pictures. This is a family workshop where adults are encouraged to bring children of all ages and have a fun time together.
Bergrún Íris Sævarsdóttir was born in 1985 and lives in Hafnarfjörður with her family. She graduated with a BA in Art History from the University of Iceland in 2009, completed a diploma in drawing from the Reykjavík School of Visual Arts in the spring of 2012, and attended a summer school in children's book creation at Anglia Ruskin, Cambridge School of Art.
A workshop will be offered in connection with the exhibition:
https://www.facebook.com/events/1595453721604460/1595453724937793/
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri
[email protected] | 411 6145 See less
Advertisement
Where is it happening?
Borgabókasafn Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.



















