Ægir - conditioned by experience - ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Í IÐNÓ
Schedule
Wed May 13 2026 at 08:00 pm to 11:00 pm
UTC+00:00Location
IÐNÓ | Reykjavík, RE
Advertisement
[english below]Trommarinn og tilraunatónlistarmaðurinn Ægir Sindri fagnar útgáfu tíundu sólóplötu sinnar með veglegum tónleikum í Iðnó.
Platan, sem ber titilinn ‘conditioned by experience’, skeytir saman áhrifum úr tveimur heimum sem Ægir hefur lifað og hrærst í um árabil; harðkjarnapönkinu og þungarokkinu sem hann ólst upp í og svo tilraunatónlistinni sem hann hefur fengist við undanfarin ár, bæði sem einyrki og með öðrum. Harðkjarna orka, óreiða og sprengikraftur en með afar tilraunakenndri nálgun.
Ásamt Ægi koma einnig fram John McCowen og Þóranna aka Trouble.
https://aegir.bandcamp.com
https://www.johnmccowen.com
https://thorannabjornsdottir.com
Miðasala: https://tix.is/event/21475/aegir
Húsið opnar klukkan 20:00.
Tónleikar hefjast klukkan 21:00.
Ægir nýtur liðsinnis stórrar hljómsveitar sem hjálpar honum að flytja verkið:
Trommur: Ægir Sindri Bjarnason / Hrafnhildur Einars- og Maríudóttir / Sólrún Mjöll Kjartansdóttir / Magnús Skúlason / Helgi Pétur Hannesson
Bassafeedback: Halla Kristjánsdóttir / Sigurlaug Thorarensen
Gítarfeedback: Hörður Jónsson / Kristján Alexander Rainers Friðriksson / Sturla Sigurðarson / Úlfur Hansson / Vigfús Þór Eiríksson / Þórir Georg Jónsson
Rödd & hljóðnemafeedback: Ylfa Þöll Ólafsdóttir
Hljóðbreytifetlar: Maria-Carmela Raso
Hljóð: Nikulás Yamamoto Barkarson
Ljós: Óðinn Dagur Bjarnason
---------------------------
Drummer and experimental musician Ægir Sindri celebrates the release of his tenth solo album with a grand concert in Iðnó.
The album, titled ‘conditioned by experience’, combines influences from two worlds that Ægir has lived in and been shaped by through the years; the hardcore punk and metal that he grew up in and the increasingly experimental music that he has been involved with in recent years, both as a solo artist and with others. Hardcore energy, chaos and explosiveness but with a very experimental approach.
Þóranna aka Trouble and John McCowen will open the show.
https://aegir.bandcamp.com
https://www.johnmccowen.com
https://thorannabjornsdottir.com
Tickets: https://tix.is/event/21475/aegir
Doors open at 20:00.
Concert starts at 21:00.
Ægir is assisted by a large band in performing the album:
Drums: Ægir Sindri Bjarnason / Hrafnhildur Einars- og Maríudóttir / Sólrún Mjöll Kjartansdóttir / Magnús Skúlason / Helgi Pétur Hannesson
Bass feedback: Halla Kristjánsdóttir / Sigurlaug Thorarensen
Guitar feedback: Hörður Jónsson / Kristján Alexander Rainers Friðriksson / Sturla Sigurðarson / Úlfur Hansson / Vigfús Þór Eiríksson / Þórir Georg Jónsson
Voice & microphone feedback: Ylfa Þöll Ólafsdóttir
Sound manipulation pedals: Maria-Carmela Raso
Sound: Nikulás Yamamoto Barkarson
Lights: Óðinn Dagur Bjarnason
------------------------
Ægir hefur tekið virkan þátt í tónlistarlífi Reykjavíkur frá unglingsaldri; sem trymbill í fjölda fjölbreyttra hljómsveita, en einnig sem upptökustjóri, útgefandi, hljóðmaður, tónleikahaldari og ýmislegt fleira.
Í janúar 2020 frumflutti hann einyrkjaverkefni sitt, þar sem hann kemur fram undir eigin nafni, yfirleitt einn og óstuddur. Síðan þá hefur hann gefið út níu plötur og haldið fjölda metnaðarfullra tónleika. Plöturnar fara um víðan völl; frá harðri, ryþmískri raftónlist yfir í blíða geimræna sveimtónlist og þaðan í furðuhljóða trommutilraunir og ýmislegt þar á milli. ‘conditioned by experience’ er hans tíunda sólóplata og má líta á hana sem eins konar uppgjör á tónlistar- (og lífs-)ferli hans hingað til.
BRIDGES II - plata Ægis frá 2023 hlaut Íslensku Tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins í flokknum 'Önnur tónlist'. BRIDGES II er tíu klukkustunda löng hljóðtilraunaplata og var fagnað með jafn löngum tónleikum þar sem Ægir fékk með sér einvalalið gesta úr íslensku tónlistarlífi.
The Earth Grew Uncertain frá 2021 hlaut tilnefningu til Kraumsverðlaunanna og tvær tilnefningar til Íslensku Tónlistarverðlaunanna.
Advertisement
Where is it happening?
IÐNÓ, Vonarstræti 3, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.















