Sumarhátíð Skoppu og Skrítlu í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum!
Schedule
Thu May 14 2026 at 11:00 am to 04:00 pm
UTC+00:00Location
Fjölskyldu- og Húsdýragarðurinn | Reykjavík, RE
Advertisement
Elsku vinir! Nú er sumarið loksins komið og við Skoppa og Skrítla ætlum að halda stórkostlega sumarhátíð fyrir alla fjölskylduna 💛Hátíð á sviði hefst kl 13 og stendur til rúmlega 15.
Það verður sannkölluð gleðistemning þar sem kærir vinir Skoppu og Skrítlu munu stíga á svið. Má þar nefna Bakara Svakara og Zúmma, Pál Óskar, Jóhönnu Guðrúnu, leikhópinn úr tónleikasýningunni ásamt mörgum öðrum frábærum stjörnum. Gestir fá einnig tækifæri til að smakka glænýjan Skoppu & Skrítlu ís frá Valdís og taka þátt í fjölbreyttu fjöri.
Á sama tíma fögnum við því að miðasala á tónleikasýningu Skoppu og Skrítlu verður opnuð. Sýningin mun vera í Hörpu og Hofi þetta árið svo þetta er kjörið tækifæri til að tryggja sér sæti og vera hluti af skemmtuninni framundan.
Tónlist, dans, söngvar, gleði og sumarstemning sem þú vilt ekki missa af! 🌞
Leiktæki verða opin frá kl. 10 til 17 svo það er um að gera að mæta snemma.
Við hvetjum ykkur til að skoða nýju verðskrá Fjölskyldu- og húsdýragarðsins á www.mu.is en þar er t.d. árskort fyrir fullorðna komið úr 17.600 kr í aðeins kr 7.000 og það er ekki greitt sérstaklega fyrir aðgang í leiktækin. Ekki er mögulegt að ganga frá kaupum á stökum aðgangi eða árskortum á netinu eða í gegnum síma enn sem komið er. Svo mætið snemma svo fjörið byrji ekki á undan ykkur ;)
Við hlökkum mikið til að sjá ykkur!
Advertisement
Where is it happening?
Fjölskyldu- og Húsdýragarðurinn, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.









