Vesenisball - matur, skemmtun og dans
Schedule
Sat, 10 Jan, 2026 at 06:45 pm to Sun, 11 Jan, 2026 at 01:30 am
UTC+00:00Location
Háteigskirkja | Reykjavík, RE
Advertisement
Vesenisball verður haldið laugardagskvöldið 10. janúar! Takið kvöldið frá og bjóðið áhugasömum í kringum ykkur.
Fyrst verður matur og svo verður rækilega tekið á því á dansgólfinu!
Hægt verður að mæta bara á ballið eða koma í matinn á undan.
Við verðum með hlaðborð og hægt verður að koma með mat á hlaðborðið. Þau sem gera það fá frítt inn. Það er ekki bar og fólk kemur með eigin áfenga eða óáfenga drykki (BYOB).
DAGSKRÁ
Kl. 17:00 Hús opnar fyrir skreytingarnefnd
Kl. 18:00 Hús opnar fyrir þau sem koma með matföng
Kl. 18:45 Mæting fyrir matargesti og stefnt á að borðhald hefjist kl. 19:15.
Létt gamanmál undir borðhaldi og upprifjun á eftirminnilegum göngum og ferðum
Kl. 21:00 Opnað fyrir ballgesti
Kl. 21:15 Tónlistaratriði og söngur
Kl. 22:00 Eldfjörug dans- og diskótónlist
MIÐAVERÐ
Vesenisball og hlaðborð verð kr. 7500: Mæting kl. 19:00 í safnaðarheimili Háteigskirkju 10. jan 2024.
Vesenisball (ekki matur) verð kr. 3000: Mæting eftir kl. 21:00 í safnaðarheimili Háteigskirkju 10. jan 2024.
Athugið að miðar eru ekki endurgreiddir en hægt að framselja til annars. Látið vita um nafnabreytingu á miða til: [email protected]
Óskað er eftir fólki í aðstoð við skipulagningu.
Vantar einhvern sem hefur yfirumsjón með matnum og heldur saman upplýsingum um hver kemur með hvað.
Svo er það skreytingarnefnd og skemmtinefnd.
Advertisement
Where is it happening?
Háteigskirkja, Háteigsvegur 29, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.











