Torfhleðslunámskeið
Schedule
Wed, 03 Jun, 2026 at 09:00 am to Fri, 05 Jun, 2026 at 04:00 pm
UTC+00:00Location
Tyrfingsstaðir, 561 Akrahreppur, Ísland | Saudarkrokur, AS
Advertisement
Námskeið í torfhleðslu verður haldið á Tyrfingsstöðum í Skagafirði dagana 3.-5. júní næstkomandi. Á Tyrfingsstöðum hafa verið endurreist og viðgerð nokkur torfhús, torfbær, útihús og hlöður, sem saman mynda einstaka minjaheild. Til stendur að laga torfvegg í hesthúsinu, sem áfast er gömlu híbýlunum á staðnum. Sumarið 2025 var húsgrindin reist á grindarsmíðanámskeiði Fornverkaskólans, og í sumar er ætlunin að ljúka við húsið.Námskeiðslýsing
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa áhuga á að læra að byggja úr torfi. Hluti af námskeiðinu er í formi kynningar og vettvangsskoðunar, en megináhersla verður á verklega kennslu. Kennd verða meginatriði í efnisvali, torfstungu og torfskurði og helstu hleðsluaðferðir með streng og klömbruhnausum. Helstu verkfæri verða á staðnum, s.s. stunguskóflur og torfljár.
Helstu markmið námskeiðsins eru að nemendur:
Þekki helstu hugtök, verkfæri og hleðslugerðir er tíðkast í torfhleðslu
Þjálfist í torfhleðslu og efnistöku, geti hlaðið og gengið frá torfvegg með klömbruhnaus og/eða streng
Tileinki sér góðar vinnureglur við viðgerðir og umgengni fornra og friðaðra mannvirkja
Hvænær: 3.-5. júní 2026, kl. 9-16.
Hvar: Tyrfingsstaðir í Skagafirði.
Leiðbeinandi: Helgi Sigurðsson hjá Fornverki ehf.
Hvað þarf að hafa með: Hlýjan fatnað, hlífðarföt (pollagalla), vinnuhanska og stígvél/góða skó. Torftakan fer m.a. fram í votlendi og því viðbúið að þátttakendur verði moldugir og blautir.
Fjöldi þátttakenda: Lágmark 6 – hámark 12.
Verð: 70.000 kr. Innifalið; efni, áhöld, kaffiveitingar og léttur hádegisverður.
Skráning fer fram í gegnum heimasíðu Byggðasafns Skagfirðinga: https://www.glaumbaer.is/is/fornverkaskoli-skraning-a-namskeid (eða undir flipanum "Skráning á námskeið"). Athugið að 20.000 kr. skráningargjald fæst ekki endurgreitt.
Athugið að nemendur þurfa sjálfir að sjá um gistingu og mat utan námskeiðs.
Fornverkaskólinn minnir á fræðslusjóði stéttarfélaganna og niðurgreiðslu þeirra vegna þátttöku á námskeiðum. Kynntu þér réttinn hjá þínu stéttarfélagi.
Fyrirspurnir: Inga Katrín D. Magnúsdóttir svarar frekari fyrirspurnum á netfanginu [email protected]
Þeim er sækja námskeið Fornverkaskólans er bent á að huga að eigin tryggingum, en Fornverkaskólinn er ekki ábyrgur gagnvart slysum.
Advertisement
Where is it happening?
Tyrfingsstaðir, 561 Akrahreppur, Ísland, Tyrfingsstaðir, Tyrfingsstaðir, 561 Akrahreppur, Ísland, Saudarkrokur, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.







