Þilsmíðanámskeið

Schedule

Sat, 06 Jun, 2026 at 09:00 am to Sun, 07 Jun, 2026 at 04:00 pm

UTC+00:00

Location

Tyrfingsstaðir, 561 Akrahreppur, Ísland | Saudarkrokur, AS

Advertisement
Námskeið í þilsmíði verður haldið á Tyrfingsstöðum í Skagafirði dagana 6.-7. júní næstkomandi. Á Tyrfingsstöðum hafa verið endurreist og viðgerð nokkur torfhús, torfbær, útihús og hlöður, sem saman mynda einstaka minjaheild. Sumarið 2025 var reist húsgrind í hesthúsi, sem áfast er gömlu híbýlunum á staðnum, og á tveggja daga námskeiði í sumar er ætlunin að smíða þil og hurðar og ljúka þar með smíðaverki hússins.
Námskeiðslýsing og helstu markmið
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa áhuga á að læra um meginhugtök og verklag í smíði í gömlum útihúsum. Námskeiðið er að mestu verklegt, þar sem þátttakendur hefla timbur og smíða þil og hurðar. Helstu hugtök og heiti verða kennd samhliða verkkennslunni.
Meginmarkmið námskeiðsins er að þátttakendur kynnist helstu hugtökum í grindarsmíði og heiti þeirra verkfæra sem notuð eru; tileinki sér góðar vinnureglur við viðgerðir og umgengni fornra og friðaðra mannvirkja og læri að hefla og smíða einfalt þil úr timbri og oka hurðar.
Hvænær: 6.-7. Júní 2026, kl. 9-16.
Hvar: Tyrfingsstaðir í Skagafirði
Leiðbeinandi: Snædís Traustadóttir, húsasmíðameistari
Hvað þarf að hafa með: Hlýjan fatnað, hlífðarföt (pollagalla), vinnuhanska og góða skó.
Fjöldi þátttakenda: Lágmark 6 – hámark 10.
Verð: 70.000 kr. Innifalið; efni, áhöld/verkfæri, kaffiveitingar og léttur hádegisverður. Athugið að nemendur þurfa sjálfir að sjá um gistingu og mat utan námskeiðs.
Skráning fer fram í gegnum heimasíðu Byggðasafns Skagfirðinga: https://www.glaumbaer.is/is/fornverkaskoli-skraning-a-namskeid (eða undir flipanum "Skráning á námskeið"). Athugið að 20.000 kr. skráningargjald fæst ekki endurgreitt.
Fornverkaskólinn minnir á fræðslusjóði stéttarfélaganna og niðurgreiðslu þeirra vegna þátttöku á námskeiðum. Kynntu þér réttinn hjá þínu stéttarfélagi.
Fyrirspurnir: Inga Katrín D. Magnúsdóttir svarar frekari fyrirspurnum á netfanginu [email protected]
Þeim er sækja námskeið Fornverkaskólans er bent á að huga að eigin tryggingum, en Fornverkaskólinn er ekki ábyrgur gagnvart slysum.
Advertisement

Where is it happening?

Tyrfingsstaðir, 561 Akrahreppur, Ísland, Tyrfingsstaðir, Tyrfingsstaðir, 561 Akrahreppur, Ísland, Saudarkrokur, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Icon
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Bygg\u00f0asafn Skagfir\u00f0inga - Skagafj\u00f6r\u00f0ur Heritage Museum

Host or Publisher Byggðasafn Skagfirðinga - Skagafjörður Heritage Museum

Ask AI if this event suits you:

Discover More Events in Saudarkrokur

Sauman\u00e1mskei\u00f0
Sat, 09 May at 09:00 am Saumanámskeið

Farskólinn - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra

Torfhle\u00f0slun\u00e1mskei\u00f0
Wed, 03 Jun at 09:00 am Torfhleðslunámskeið

Tyrfingsstaðir, 561 Akrahreppur, Ísland

\u00deilsm\u00ed\u00f0an\u00e1mskei\u00f0
Sat, 06 Jun at 09:00 am Þilsmíðanámskeið

Tyrfingsstaðir, 561 Akrahreppur, Ísland

Bandvefna\u00f0arn\u00e1mskei\u00f0 \u00ed Skagafir\u00f0i
Sat, 08 Aug at 09:00 am Bandvefnaðarnámskeið í Skagafirði

Byggðasafn Skagfirðinga - Skagafjörður Heritage Museum

What's Happening Next in Saudarkrokur?

Discover Saudarkrokur Events