Prjónaljómi í Reykjarfirði (prjónanámskeið & kvennaferð)
Schedule
Thu, 18 Jun, 2026 at 05:00 pm to Wed, 24 Jun, 2026 at 05:00 pm
UTC+00:00Location
Norðurfjörður, Strandasyslu, Iceland | Saudarkrokur, AS
Advertisement
Prjónaljóma námskeiðið okkar í Aðalvík er nú uppselt en þið skuluð ekki örvænta, það eru nefninlega ennþá nokkur pláss í Prjónaljóma Reykjarfirði.-------------------------------------------------
PRJÓNALJÓMI BÝÐUR Á PRJÓNANÁMSKEIÐ Í REYKJARFJÖRÐ 18 - 24. JÚNÍ 2026 🧶🏔️
Prjónahönnuðurinn og bókmenntafræðingurinn Bergrós Kjartansdóttir og leiðsögu- og þjóðfræðingurinn Ingibjörg Guðjónsdóttir halda áfram ferð sinni með Prjónaljóma um Hornstrandir og vitja kvennaminna úr átthögum sínum.
Nú ætlum við að bjóða nokkrum frábærum prjónakonum í stofu Matthildar langömmu Ingibjargar í Reykjarfirði. Þar ráða prjóna - og sagnaljómi ríkjum.
6 dagar af prjónaskap og náttúru 🌱
Bergrós og Ingibjörg verða með uppákomur á hverjum degi sem tengjast prjóni, náttúruupplifunum, mat og almennri hugljómun og friðsæld sem þarna ríkir.
Síðan leggja allir sitt af mörkum í skemmtileg-heitin og gleðina alla daga.
Prjónaljómi í Reykjarfirði á Hornströndum
・Verð á mann: kr. 259.900
・Hópastærð: 8-14 manns
Innifalið ---------------------------------------
・Bátsferð í og úr Norðurfirði í Reykjarfjörð
・Prjónavinnustofur
・Matur: Fimm kvöldverðir, hádegis- og morgunverðir
・Gisting í 6 nætur í kojuherbergjum
・Jóga, teygjur, hugleiðsla og húll.
・Sögugöngur um svæðið og strandferðir
・Sundlaug í Reykjafirði
・Kvöldvökuljómi
Ekki innifalið ---------------------------------------
・Ferð til og frá Norðurfirði (Við sameinumst í bíla eins og hægt er)
・Kvöldmatur á Norðurfirði (x1) - Við förum út að borða saman.
SKRÁNING:
Skráning fer fram í gegnum tölvupóst á [email protected]
ATH: Ekki er nauðsynlegt að vera þaul-reynd prjónakona en æskilegt er að kunna að prjóna slétt og brugðið, auk þess að fitja upp.
Varðandi Gistingu:
- Við gistum 1 nótt í Norðurfirði og 5 nætur Reykjarfirði
- Koma verður með eigin svefnpoka, og handklæði
(Hægt er að fá uppábúið rúm í Reykjarfirði gegn auka greiðslu)
Advertisement
Where is it happening?
Norðurfjörður, Strandasyslu, Iceland, Saudarkrokur, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.