Swae Lee // Same Difference Europe Tour // Austurbæjarbíó - UPPSELT

Schedule

Sat, 15 Aug, 2026 at 08:00 pm

UTC+00:00
Location

Austurbæjarbíó | Reykjav, RE

Advertisement
Garcia Events kynnir með stolti: Swae Lee í Austurbæjarbíó
Swae Lee kemur fram í Austurbæjarbíó þann 15. ágúst nk.
UPPSELT

Listamaðurinn sem er best þekktur fyrir lög á borð við “Unforgettable” ásamt French Montana, “Sunflower” ásamt Post Malone og fyrir störf sín sem helmingur rapp dúósins Rae Sremmurd heldur á Evróputúr í kjölfarið á útgáfu breiðskífu hans “Same Difference”. Á ferðalaginu kemur hann víða við en þann 15.ágúst kemur hann fram á tónleikum í Austurbæjarbíó. Þetta er í annað sinn sem Swae Lee kemur fram á Íslandi en hann kom fram í Laugardalshöll árið 2015 með Rae Sremmurd.
Eftir afar farsælan og áhrifamikinn feril Rae Sremmurd sneri Swae Lee sér að lagasmíðum og eigin tónlist. Áðurnefndar smáskífur Unforgettable og Sunflower eru með stærri poppsmellum aldarinnar og hið síðarnefnda er eina lagið sem hlotið hefur tvöfalda demantsviðurkenningu frá félagi hljómplötuframleiðanda í Bandaríkjunum. Þá hefur Swae Lee ljáð ýmsu öðru tónlistarfólki aðstoð sína og má nefna Beyonce, Travis Scott & Drake í því samhengi.
Swae Lee er eins og áður segir á tónleikaferðalagi að fylgja á eftir nýjustu plötu sinni. Hann vakti gífurlega athygli með framkomu sinni á Coachella nú í vor og tónleikar hans þar voru einn af hápunktum hátíðarinnar í ár. Hann mætir í Austurbæjarbíó með áratug af slögurum í farteskinu og ljóst að mikið stuð verður þann 15. Ágúst.
Það er 18 ára aldurstakmark á tónleikana.
Börn yngri en 18 ára mega koma í fylgd með ábyrgri forráðamanneskju sem hefur náð 25 ára aldri.
ATHUGIÐ. Hver forráðamanneskja má aðeins fylgja og taka ábyrgð á tveimur einstaklingum að hámarki.
Dyraverðir og tónleikahaldarar áskilja sér rétt til að ógilda miða við hurð telji þau að þessum reglum sé ekki fylgt eða að forráðamanneskja geti ekki tekið ábyrgð á þeim sum hún fylgir.
Advertisement

Where is it happening?

Austurbæjarbíó, Snorrabraut 37, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Garcia Events
Host or PublisherGarcia Events

Ask AI if this event suits you