Styrktu sambandið við þig -námskeið með Kolbrúnu
Schedule
Tue, 06 Jan, 2026 at 05:00 pm
UTC+00:00Location
Skeifan 7,2nd and 3rd floor, 108 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE
Á Styrktu sambandið við þig beinir þú athyglinni að innri samskiptum, hugsunum, tilfinningum og viðhorfum og eflir þar með getu þína til að virkja eigin styrkleika, bæta lífsgæði og skapa meiri vellíðan í daglegu lífi.
Kolbrún nýtir samþætta, nærandi nálgun sem byggir á:
* Jógaþerapíu með mjúkum, djúpum og opnandi stöðum sem næra líkama og hjálpa til við að losa um bandvef.
* Yoga Nidra djúpslökun sem styður endurheimt og innri kyrrð.
* Gong-tónheilun sem vinnur á djúpum sviðum líkama, huga og tilfinninga.
Þessi samsetning getur hjálpað þér að draga úr langvarandi streitu, losa um spennu og tilfinningalegar stíflur og styrkja taugakerfið fyrir meiri jafnvægi og vellíðan.
Námskeiðið stendur í 5 vikur frá 6. janúar til 3. febrúar, á þriðjudögum frá kl. 17:00 til 18:30. Námskeiðið kostar. 23.900 kr og þú getur skráð þig með því að smalla á miðar, á heimasíðunni eða í afgreiðslu Yoga Shala Reykjavík.
Nánar: yogashala.is/styrktu-sambandid-vid-thig
Where is it happening?
Skeifan 7,2nd and 3rd floor, 108 Reykjavík, Iceland, Skeifan 7, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:




