Stefán Ragnar Höskuldsson á Listahátíð í Reykjavík
Schedule
Wed, 03 Jun, 2026 at 07:30 pm
UTC+00:00Location
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre | Reykjavík, RE
Advertisement
Það er mikið tilhlökkunarefni að Stefán Ragnar komi nú í fyrsta sinn fram á Listahátíð í Reykjavík. Haldnir verða tvennir tónleikar, bæði í Reykjavík og í Eskifjarðarkirkju, á æskuslóðum Stefáns fyrir austan. Hér gefst einstakt tækifæri til þess að hlýða á Stefán Ragnar leika með góðvinum sínum, Sigurgeiri Agnarssyni sellóleikara og Liam Kaplan píanóleikara. Á efnisskránni verða verk eftir tónskáld á borð við Prokofiev, Villa-Lobos og Mendelssohn.Stefán Ragnar Höskuldsson flautuleikari er í hópi íslensks tónlistarfólks sem náð hefur einstökum árangri í hinum alþjóðlega tónlistarheimi.
Stefán var fyrsti flautuleikari Metropolitan-óperunnar í New York frá 2008 til 2016 og hjá Sinfóníuhljómsveitinni í Chicago frá 2015 til 2025. Síðastliðið haust tók hann við stöðu fyrsta flautuleikara Fílharmóníusveitarinnar í Berlín. Hann kemur einnig reglulega fram sem einleikari og gestakennari víða um heim.
Miðasala er inn á tix.is á tónleika Stefán Ragnars í Hörpu þann 3. júní 🎫
Miðasala hefst von bráðar á tónleika hans í Eskifjarðarkirkju 2. júní <3
Advertisement
Where is it happening?
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.





