Norðan þeyr

Schedule

Thu, 04 Jun, 2026 at 08:00 pm

UTC+00:00

Location

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE

Advertisement
Þórður og Atli koma suður með seiðandi horn og píanótónleika.
Þórður Sigurðarson hefur hefur starfað við tónlist frá 17 ára aldri. Hann lauk kirkjuorganista prófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar meðfram menntaskóla, fór því næst til Noregs og lauk þar námi við Viken folkehögskole í Rytma tónlist og hefur einnig lokið grunnnámi í jazz píanóleik við The New School for Jazz and Contemporary Music í New York.
Þrátt fyrir ungan aldur er reynsla Þórðar víðtæk á sviði tónlistarinnar og spannar þátttöku í verkefnum á sviði Jazz, popp, rokk og klassískur. Hann hefur sungið í kórum frá unga aldri og stjórnað Kirkjukórum á Langanesi, Norðfirði, Mosfellsbæ og einnig Karlakór Kjalnesinga. Meðfram organistastarfi í Neskaupstað stjórnaði hann tónlist við flutning á söngleikjum listadeildar Verkmenntaskóla Austurlands og þurfti þá einnig að útsetja fyrir kórinn. Hann hefur sett upp stór klassísk og trúarleg verk í starfi sínu innan kirkjunnar og stjórnað kór og stórri hljómsveit. Rytma tónlistin hefur spilað stóran þátt í lífi hans og hefur hann spilað í hinum ýmsu hljómsveitum, m.a. Rock Paper Sisters sem hituðu upp þegar Billy Idol spilaði í Laugardalshöll.
Atli Sigurðsson hóf sitt tónlistarnám við 10 ára aldurinn á Baritón horn hjá Eiríki Stephensen (Hundur í óskilum) við Tónlistarskóla Dalvíkur og síðar lítillega hjá Ingibjörgu Azimu Guðlaugsdóttur. Hann hóf sitt hornnám hjá Helga Þ. Svavarssyni við Tónlistarskólann á Akureyri og fór svo suður og lærði hjá Joe Ognibene við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann hætti í tvö ár að spila og hóf nám aftur við Tónlistarskólann á Akureyri aftur hjá Helga Þ. Svavarssyni og fór þaðan til Ellu Völu Ármannsdóttur og kláraði framhaldsprófið vorið 2017. Þaðan lá leiðin í Listaháskólann og var þar undir handleiðslu Emils Friðfinnssonar í 4 ár og kláraði B.A. gráðu í hornleik þaðan.
Atli hefur spilað með Nordiska Ungdomsorkestern, Orkester Norden, Sinfóníuhljómsveit Unga Fólksins, Ungsveit SÍ, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Sinfóníuhljómsveit Austurlands og Sinfóníuhljómsveit Áhugamanna.
Fyrsta verkið eða Ave Maria eftir Gonoud með melódíunni frægu úr verki Bachs eða Prelúdíu í C dúr er bland af barrokki og rómantík (Gounod). Verkið er ódauðlegt og mun lifa um ókomin ár.
Næsta verk er Ave verum corpus sem er stuttur Eucharistic söngur frá 13. Öld. Hefur öðlast mikið vægi og er jafnan flutt í jarðarförum og brúðkaupum og helst messum.
Þriðja verkið er þekktasta af þessum þremur eða Ave Maria eftir Franz Schubert. Verkið er klassískt samið fyrir rödd og píanó eða orgel. Það er oftast í jarðarförum og messum í kirkjum. Hefur verið flutt af t.d. Pavarotti og drengjakór Vínar Fílharmóníunnar í Vín.
Fjórða verkið er Nocturno op. 7 eftir Franz Strauss. Franz var hornleikari og faðir Richard Strauss. Verkið telst til rómantíkur með fallegum og lýrískum melódíum og spannar 3 áttundir.
Fimmta verkið er Laudatio eftir Bernhard Krol (Var lowhorn leikari í einni af Berlínar atvinnu hljómsveitunum á 7. Og 8. Áratug síðustu aldar. Verkið var samið sér fyrir Hermann Baumann (virtúós sem er sá þekktasti á hornið) og er módernískt. Verkið byrjar með ákveðnu mótífi sem spyr trúarlegrar spurningar. Eftir fylgir ferðalag þar sem er gerð leit að skilningi. Þetta er eitt mest flutta sólóverk fyrir horn.
Sjötta verkið er hornkonsert nr. 3 eftir W.A. Mozart í Es dúr KV 447
(Allegro/Andante/Rondo Allegro). Verkið er einn af fjórum hornkonsertum og einu auka rondói sem var skrifað fyrir ostagerðarmanninn og vin Mozarts Josef Leutgebs sem var fiðluleikari og náttúruhornleikari. Verkið telst til klassíkur og inniheldur eina kadensu í lok 1. Kafla (Kadensan sem ég spila er eftir Dennis Brain horn virtúós dó 1957 í bílslysi).
Síðasta verkið er Rómansa op. 36 e. Camille Saint-Saens. Undurfalleg rómantísk melódía í horninu og brotnir hljómar frekar einfaldir í píanóinu. Smá drama sem byggist upp og leysist frá hápunkti niður í lágpunkti. Grunnstigsverkefni en Meira segja Radovan Vlatkovic (frægasti og besti hornleikarinn) spilar það sem aukalag eða jafnvel Gabriel Chopka (Sóló horn Varsjár Fílhamóníunni.) (Orkestria filharmoni narodówej).
Advertisement

Where is it happening?

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland, Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Icon
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Hannesarholt

Host or Publisher Hannesarholt

Ask AI if this event suits you:

Discover More Events in Reykjavík

Hlustunarherbergi Garg
Thu, 04 Jun at 04:00 pm Hlustunarherbergi Garg

IÐNÓ

FESTIVALS ART
UNDIR YFIRBOR\u00d0INU: M\u00e1l\u00feing um mikilv\u00e6gi moldar \ud83e\udeb1
Thu, 04 Jun at 04:00 pm UNDIR YFIRBORÐINU: Málþing um mikilvægi moldar 🪱

Sæmundargata 11, 101 Reykjavík, Iceland

EXHIBITIONS
N\u00e6rmynd - Hildur Gu\u00f0nad\u00f3ttir og Sinf\u00f3n\u00eduhlj\u00f3msveit \u00cdslands \u00e1 Listah\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed Reykjav\u00edk
Thu, 04 Jun at 07:30 pm Nærmynd - Hildur Guðnadóttir og Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð í Reykjavík

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

ENTERTAINMENT MUSIC
H\u00e1degisver\u00f0ur me\u00f0 .haus-samf\u00e9laginu \u00ed Reykjav\u00edk.
Fri, 05 Jun at 12:30 pm Hádegisverður með .haus-samfélaginu í Reykjavík.

IÐNÓ

FESTIVALS ART
Summer Market - Reykjav\u00edk \u2600\ufe0f Mama & White Lotus
Fri, 05 Jun at 01:00 pm Summer Market - Reykjavík ☀️ Mama & White Lotus

Bankastræti 2, 101

MUSIC ART
The Icelandic tattoo convention 20 \u00e1ra
Fri, 05 Jun at 02:00 pm The Icelandic tattoo convention 20 ára

Gamla Bíó

Iceland Adventure 2026 3rd Line Hockey Draught Tournament
Fri, 05 Jun at 07:00 pm Iceland Adventure 2026 3rd Line Hockey Draught Tournament

Skautahöllin í Laugardal

SPORTS TOURNAMENTS
Seth Newton *Debut Live Performance* @ H\u00fas M\u00e1ls Og Menningar! {Reykjavik,Iceland}
Fri, 05 Jun at 09:00 pm Seth Newton *Debut Live Performance* @ Hús Máls Og Menningar! {Reykjavik,Iceland}

Hús máls og menningar

MUSIC
Orgeleinleikst\u00f3nleikar
Sun, 10 May at 04:00 pm Orgeleinleikstónleikar

Hallgrímskirkja

N\u00fd \u00edslensk t\u00f3nlist 2026
Sun, 10 May at 05:00 pm Ný íslensk tónlist 2026

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

ECHO Rising Stars: \u00c1lfhei\u00f0ur Erla og Kunal Lahiry
Sun, 10 May at 08:00 pm ECHO Rising Stars: Álfheiður Erla og Kunal Lahiry

Austurbakki 2, 101 Reykjavík, Iceland

ART LITERARY-ART
Vort\u00f3nleikar G\u00f3\u00f0ra granna
Mon, 11 May at 08:00 pm Vortónleikar Góðra granna

Langholtskirkja

Vorf\u00f6gnu\u00f0ur m\u00f6ntruk\u00f3rsins \ud83c\udf31
Tue, 12 May at 07:00 pm Vorfögnuður möntrukórsins 🌱

Mama Reykjavík

MUSIC ENTERTAINMENT
Mi\u00f0pr\u00f3fst\u00f3nleikar
Tue, 12 May at 08:00 pm Miðprófstónleikar

Rauðagerði 27

MUSIC ENTERTAINMENT
Fr\u00e1 hjarta til hjarta
Wed, 13 May at 06:30 pm Frá hjarta til hjarta

Guðríðarkirkja

Danskv\u00f6ld me\u00f0 Lindy Hop & Fja\u00f0rafok
Wed, 13 May at 07:00 pm Danskvöld með Lindy Hop & Fjaðrafok

White Lotus Venue - Iceland

MUSIC ENTERTAINMENT
Lj\u00f3tik\u00f3r - Samfer\u00f0a Magn\u00fasi Eir\u00edkssyni
Wed, 13 May at 07:30 pm Ljótikór - Samferða Magnúsi Eiríkssyni

Skipholt 33, 105 Reykjavík, Iceland

MUSIC ENTERTAINMENT
\u00dar smi\u00f0ju Umbru: Sp\u00e1konan og sk\u00e1ldi\u00f0
Wed, 13 May at 08:00 pm Úr smiðju Umbru: Spákonan og skáldið

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland

Hlj\u00f3msveitin Gammar \u00e1 M\u00falanum
Wed, 13 May at 08:00 pm Hljómsveitin Gammar á Múlanum

Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland

MUSIC ENTERTAINMENT

What's Happening Next in Reykjavík?

Discover Reykjavík Events