Róshildur, Samferða – útgáfutónleikar
Advertisement
Róshildur gaf út sína fyrstu breiðskífu Samferða 5. maí og fagnar með tónleikum í Þjóðleikhúskjallaranum 16. júní.
Vertu samferða henni í gegnum katalóginn sem nýlega óx með tíu laga vefnaðarverki sem er komið út á streymisveitum, en á tónleikunum verður vínyll til sölu á sérstakökum prís fyrir samferðarfólk sem þangað mætir.
Miðasalan er hafin á tix.is
Frumraun Róshildar, EP platan (V2,2), sem kom út árið 2023, vann henni sess í íslensku tónlistarsenunni sem bæði höfundur og flytjandi, en hún var krýnd The One to Watch á The Reykjavík Grapevine verðlaununum. Síðan þá hefur hún komið fram á mörgum af helstu tónlistarhátíðum Íslands auk sóló-tónleika í Reykjavík, þar á meðal í Iðnó og Mengi.
Tónleikar Róshildar einkennast af síbreytilegum lifandi leik, þegar hún lúppar rödd sinni og hljóðfærum og dáleiðir áhorfendur með sínum einstöku frásagnaraðferðum í gegnum hljóð og orð. Vald Róshildar á íslenska tungumálinu er sérstakt þar sem hún nýtir sér vandlega valin orð og marglaga merkingar þeirra í hverju samhengi fyrir sig. Afurðin er ljóðræn, angurvær og draumkennd, með passlegum keim af kaldhæðni þegar við á.
Róshildur lofar kvöldstund fullri af nánd, tónum, töktum og sögum frá sköpunarferlinu.

Where is it happening?
Þjóðleikhúsið, Hverfisgata 19, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Event Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Host or PublisherRóshildur