Ragnheiður Gröndal og Friends of Peace á Múlanum
Schedule
Wed Nov 12 2025 at 08:00 pm to 09:30 pm
UTC+00:00Location
Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE
Advertisement
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með haustdagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 12. nóvember kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur fram söngkonan Ragnheiður Gröndal ásamt hljómsveitinni Friends of Peace. Hljómsveitin sem er skipuð einvalaliði íslenskra hljóðfæraleikara ásamt hinum austurríska slagverksleikara Claudio Spieler heldur sína fyrstu tónleika á Íslandi eftir að hafa leikið víða um Evrópu, m.a. í Austurríki, Þýskalandi og Frakklandi. Tónlistin er einhvers konar heimstónlistar-bræðingur og gætir ýmissa áhrifa - svo sem úr íslenskri þjóðlagatónlist, djassi og spuna. Ásamt Ragnheiði og Claudio Spieler koma fram Haukur Gröndal sem leikur á klarínett og saxófón og gítarleikarinn Guðmundur Pétursson.Ragnheiður Gröndal and Friends of Peace
The ensemble Friends of Peace, comprising a distinguished group of Icelandic instrumentalists together with Austrian percussionist Claudio Spieler, will give their debut performance in Iceland following an extensive concert tour across Europe, including appearances in Austria, Germany, and France. Their music represents a unique fusion within the world music genre, drawing on diverse influences such as Icelandic folk traditions, jazz, and improvisation.
Ragnheiður Gröndal, vocals
Haukur Gröndal, clarinet and saxophone
Guðmundur Pétursson, guitar
Claudio Spieler, percussion
The concert starts at 20 @ Björtuloft, Harpa Concert House. Tickets ISK 4900.
Spennandi haustdagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í miðjan desember. Múlinn er á sínu 28. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu. Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 4900 og 3600 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu.
Advertisement
Where is it happening?
Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.







