Páll Óskar & Benni Hemm Hemm Útgáfutónleikar
Schedule
Wed, 08 Oct, 2025 at 08:30 pm to Thu, 09 Oct, 2025 at 10:30 pm
UTC+00:00Location
Austurbæjarbíó | Reykjavík, RE
Advertisement
Útgáfutónleikar plötunnar Alveg 8. og 9. október.Við setjum miðasöluhlekk hingað inn sólarhring fyrr - þriðjudaginn 9. september kl. 10.00.
Páll Óskar & Benni Hemm Hemm voru leiddir saman af Kidda hjálmi í þeim tilgangi að gera eitt lag fyrir Hljómskálann. Lagið kom auðveldlega til þeirra og þeim fannst freistandi að gera svosem eins og eitt lag í viðbót og svo kom annað lag og allt í einu var komin heil plata. Sú plata er alveg Páll Óskar og alveg Benni Hemm Hemm og fékk því titilinn ALVEG.
Palli og Benni fengu herskara af frábæru tónlistarfólki í heimsókn til sín í stúdíóið og fremsta fólk á sínu sviði til að sjá um hönnun, hljóðblöndun og masteringu og útkoman er einstakt verk þar sem sameinast ljúfar og sætar laglínur og flugbeittir textar.
Palli og Benni munu fagna útgáfu plötunnar með því að spila hana alla í gegn, ásamt eldri smellum þeirra.
Þeir verða langt í frá einir á sviðinu en þeir eru búnir að búa til frábæra hljómsveit sem kemur hér fram í fyrsta sinn í Austurbæjarbíói. Auk þess verður Kórinn, sem hefur átt farsælt samstarf við Benna Hemm Hemm síðastliðin ár, hluti af hljómsveitinni á þessum einstöku tónleikum.
Miðasala fer fram á stubb.is
Advertisement
Where is it happening?
Austurbæjarbíó, Snorrabraut 37, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays: