Myndlistarnámskeið fyrir 7-9 ára og 10-12 ára 🎨 / SUMAR 2026 🌞

Schedule

Mon, 15 Jun, 2026 at 04:00 pm

UTC+00:00
Location

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE

Advertisement
Myndlistarnámskeið í sumar á Listasafni Íslands 🌞
Listasafn Íslands býður upp á skapandi og skemmtileg sumarnámskeið fyrir 7 – 9 ára börn (fædd 2017 – 2019) og 10 – 12 ára börn (fædd 2014 – 2016) í listaverkstæðinu í safninu við Fríkirkjuveg 7. Unnið verður út frá sýningum safnsins þar sem listaverkin verða rannsökuð og áhersla lögð á að þjálfa lita- og formskynjun þátttakenda, sem fá svo tækifæri til að nota ólíkan efnivið og vinna í margskonar miðla, eins og málun og skúlptúr.
Markmið námskeiðsins er að fá börn til að nálgast bæði náttúru og myndlist af meiri öryggi og forvitni, þar sem kennsla fer fram bæði gegnum upplifun, samræðu og vinnu í höndunum. Í lok námskeiðs verður haldin sýning fyrir vini og fjölskyldu þar sem afrakstur námskeiðsins verður til sýnis.
Gert er ráð fyrir því að börn komi með létt nesti meðferðis, séu klædd eftir veðri og klæðist fatnaði sem hentar fyrir málningarvinnu, sull og gleði! 🧑🏼‍🎨
🕐 Námskeiðin eru kennd milli 9:00 - 12:00
👩🏼‍🎨 Kennari: Helena Reynisdóttir, myndlistarmaður
Dagsetningar:
🎨 15 - 19. júní (4 dagar) 30.000 kr.
🎨 22. - 26. júní (5 dagar) 35.000 kr.
🎨 29. - .3. júlí (5 dagar) 35.000 kr.
🎨 6. - 10. júlí (5 dagar) 35.000 kr.
🎨 4. - 7. ágúst (4 dagar) 30.000 kr.
🎨 10. - 14. ágúst (5 dagar) 35.000 kr.
Skráningarhlekkur hér:
🔗 https://www.abler.io/shop/frirvk/listasafn
Advertisement

Where is it happening?

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland, Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Listasafn \u00cdslands \/ National Gallery of Iceland
Host or PublisherListasafn Íslands / National Gallery of Iceland

Ask AI if this event suits you