Kringum Langasjó
Schedule
Wed, 29 Jul, 2026 at 07:00 am to Sat, 01 Aug, 2026 at 05:00 pm
UTC+00:00Location
Mjódd | Reykjavík, RE
Advertisement
Í þessari ferð öxlum við bakpokana og göngum í kringum hinn ótrúlega Langasjó. Það verður ein nótt í skála og tvær í tjaldi. Fararstjóri er Páll ArnarsonFerðalýsing:
Farið með rútu frá Mjódd og upp að Langasjó. Gengið í skála Útivistar í Sveinstindi og komið sér fyrir.
Vegalengd um 5km, hækkun eftir veðri og aðstæðum
Gengið frá skála og haldið norðaustur eftir skemmtilegri og afar fallegri leið í gegnum og með Fagrafjallgarði að tjaldstað við enda Langasjós.
Vegalengd, ca 25-30km, Hækkun 6-700m
Gengið úr tjaldstæði og fyrir enda vatnsins og svo undir hlíðum Breiðbaks suður undir mitt vatnið þar sem valinn verður huggulegur tjaldstaður.
Vegalengd 25 – 30km, hækkun 2-300m
Síðasta daginn er gengið áfram undir Breiðbaki að suðurenda vatnsins þar sem rútan sækir okkur.
Vegalengd, 10-12km, óveruleg hækkun
Innifalið: Rúta frá Reykjavík og til baka, skálagisting í Sveinstindi og fararstjórn.
Advertisement
Where is it happening?
Mjódd, Þönglabakki 4, 109 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.

















