Bækistöðvaferð í Bása 60+

Schedule

Wed, 15 Jul, 2026 at 10:00 am to Fri, 17 Jul, 2026 at 05:00 pm

UTC+00:00
Location

Katrínartún 4, 105 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE

Advertisement
Eftir velheppnaðar bækistöðvaferðir í Bása síðast liðin sumur verður leikurinn endurtekinn.
Stundum er talað um að hjarta Ferðafélagsins Útivistar slái í Básum á Goðalandi, en þar eiga jafnt yngri sem eldri Útivistarfélagar margar sælar minningar. Þessi ferð er tilvalin fyrir eldri félaga sem vilja endurupplifa góðar minningar, sem og nýja félaga á virðulegum aldri sem langar að kynnast þessari paradís undir leiðsögn kunnugra.
Lagt verður af stað frá Mjódd kl. 10:00 á miðvikudegi og ekið í Bása. Eftir að hafa komið sér fyrir í skála er farið í létta göngu í nágrenni skálans, genginn Básahringur með viðkomu í Fjósafuð.
Daginn eftir verður boðið uppá göngur við allra hæfi. Hvert haldið verður kemur í ljós síðar. Farið verður í 5-6 klst. göngu. Einnig verður farin léttari ganga í nágrenni Bása fyrir þá sem það vilja. Þeir sem ekki fara í gönguferð geta haldið kyrru fyrir í Básum og notið kyrrðarinnar.
Varðeldur með söng á fimmtudagskvöldinu.
Heimfarardag verður stoppað á leiðinni og tekin um tveggja tíma gönguferð á einhverjum af þeim náttúruperlum sem þar eru.
Fararstjórar: Jóhanna Benediktsdóttir, Emilía Magnúsdóttir og Guðbjartur Guðbjartsson.
Innifalið: Leiðsögn, akstur, heit sturta og tvær skálagistingar auk sameiginlegra kvöldmáltíða bæði kvöldin.
Brottför: 15. júlí kl. 10.00 frá Mjódd/bíó megin.
Heimkoma: 17. júlí á milli kl. 17.00 og 18.00.
Advertisement

Where is it happening?

Katrínartún 4, 105 Reykjavík, Iceland, Katrínartún 4, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
\u00dativist
Host or PublisherÚtivist

Ask AI if this event suits you