Dagsferð í Þórsmörk 60+

Schedule

Mon, 15 Jun, 2026 at 09:00 am

UTC+00:00
Location

Katrínartún 4, 105 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE

Advertisement
Hvenær gafst þér síðast tækifæri til að njóta fegurðar Þórsmerkur og kyrrðarinnar sem þar ríkir?
Þessi ferð er hugsuð fyrir 60+ sem hafa áhuga á að skoða Þórsmerkursvæðið í allri sinni dýrð.
Í ferðinni er farið um helstu svæði Þórsmerkur og fengin innsýn í fjölbreytta náttúru hennar. Við tökum rútu úr Reykjavík og höldum inn í Þórsmörk og Goðaland með smá stoppi á leiðinni. Í Básum þar sem hjarta Útivistar slær, tekur staðarhaldari á móti okkur og við förum í skoðunarferð og þau sem vilja taka Básahringinn sem er stuttur en afar skemmtilegur göngutúr hafa færi á því. Svo er snæddur hádegisverður í litla veitingaskálanum okkar, Básabita. Svo liggur leiðin áfram á rútunni yfir á svæði FÍ í Langadal þar sem stoppað verður stutt. Þeir sem vilja, ganga yfir í Húsadal en aðrir taka rútuna áfram þangað. Í Húsadal bíður kaffi og kaka áður en haldið er til baka til Reykjavíkur.
Þessi ferð er fyrir alla, hvort sem þau hafa hug á stuttum göngum eða vilja nota rútuna meira. Við njótum fallegs umhverfis, góðs félagsskapar og góðs matar!
Markmiðið er einfalt: að njóta samverunnar og eiga ánægjulega stund í þessari einstöku náttúru.
Fararstjóri er Gunnar Hólm Hjálmarsson
Innifalið er rúta til og frá Reykjavík
Hádegismatur í Básum
Kaffi og kaka í Húsadal
Hér er hægt að skrá sig í ferðina: https://www.utivist.is/ferdir-og-dagskra/60-ferdir/vidburdur/6793/dagsferd-i-thorsmork-60
Advertisement

Where is it happening?

Katrínartún 4, 105 Reykjavík, Iceland, Katrínartún 4, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
\u00dativist
Host or PublisherÚtivist

Ask AI if this event suits you