Helgarferð á Herðubreið 17.-19. júlí 2026
Schedule
Fri, 17 Jul, 2026 at 10:00 pm
UTC+00:00Location
Strandgata 23, 600 Akureyri, Iceland | Akureyri, AU
Advertisement
Helgarferð á Herðubreið 4 skór17.–19. júlí
Brottför kl. 17 á einkabílum (góðum jeppum) frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Selma S. Malmquist
Árleg ferð FFA á þjóðarfjallið Herðubreið (1682 m). Gist í skála FFA við Drekagil eða í tjaldi. Nauðsynlegt að vera á jeppum sem komast að uppgöngunni á Herðubreið. Hægt er að sameinast í bíla og því gott að vita ef einhverjir geta tekið farþega.
Hjálmur er nauðsynlegur öryggisbúnaður auk þess þarf að hafa með jöklabrodda og ísöxi til öryggis.
Dagskrá ferðarinnar:
1. d., föstudagur: Lagt af stað frá Akureyri kl. 17. Ekið í Drekagil, gist þar. Kvöldrölt um svæðið ef vill.
2. d., laugardagur: Gengið á Herðubreið. Gangan á Herðubreið er stutt (6 km upp og niður) og brött (1000 m hækkun). Sjálf gangan getur tekið 6–7 klst. Gist aftur í Drekagili.
3. d., sunnudagur: Heimferð. Margt er að sjá í Drekagili og fólki gefst tækifæri til að skoða sig um á svæðinu áður en haldið er heim. Gert er ráð fyrir að koma til Akureyrar seinnipart dags.
Vegalengd alls 6 km. Gönguhækkun: 1000 m.
Nánari upplýsingar og skráning á ffa.is
ATH ekki er nóg að merkja við á facebook, það þarf að skrá sig í gegnum heimasíðu FFA.
Advertisement
Where is it happening?
Strandgata 23, 600 Akureyri, Iceland, Strandgata 23, 600 Akureyrarbær, Ísland, Akureyri, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.

















