Leirhnjúkur-Reykjahlíð-Hlíðarfjall
Schedule
Sat, 30 May, 2026 at 09:00 am
UTC+00:00Location
Strandgata 23, 600 Akureyri, Iceland | Akureyri, AU
Advertisement
30. maí, laugardagur Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23
Safnast saman í bíla ef vill. Þeir sem þiggja far með öðrum þurfa að taka þátt í bílakostnaði.
Fararstjórn: Grétar Ásgeirsson
Ekið að bílastæði við Leirhnjúk norðan Kröfluvirkjunar. Fyrst er gengið að Leirhnjúk og þaðan er farin stikuð leið til Reykjahlíðar sem fylgir að mestu hrauninu frá 1727 sem kallast Eldá. Leiðin liggur við suðurrætur Hlíðarfjalls og hægt að hafa viðkomu á fjallinu.
Vegalengd: 15 km. Gönguhækkun: Engin hækkun, en 300 m hækkun ef gengið er á Hlíðarfjall; val um það.
Selflytja þarf bíla á milli Reykjahlíðar og Leirhnjúks.
Verð: 2.700 / 4.400 kr. Innifalið: Fararstjórn.
Greitt við brottför.
Skráning á ffa.is. ATH. ekki er nóg að merkja við hér á facebook að fólk ætli í ferðina.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.
Advertisement
Where is it happening?
Strandgata 23, 600 Akureyri, Iceland, Strandgata 23, 600 Akureyrarbær, Ísland, Akureyri, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.



















