Ásgeir Trausti
Schedule
Sun, 26 Jul, 2026 at 09:00 pm to Mon, 27 Jul, 2026 at 11:00 pm
UTC+00:00Location
Hafnarstræti 96, 600 Akureyri, Iceland | Akureyri, AU
Advertisement
Ásgeir Trausti ætla að koma við á Græna Hattinum í sumar og spila ásamt hljómsveit nýtt og gamalt efni. Ásgeir gaf út plötuna Julia 13. febrúar sem hefur fengið frábærar viðtökur úti um allan heim. Julia, er einlægasta verk Ásgeirs til þessa en í fyrsta sinn samdi hann textana alfarið sjálfur. Útkoman er eitt hans persónulegasta verk með skugga titil persónunnar sem leiðarstef.
Það eru að verða liðin nærri fimmtán ár síðan Ásgeir Trausti steig fyrst fram á sjónarsviðið og hefur hann síðan verið í fremstu röð íslenskra tónlistarmanna. Frumraun hans, Dýrð í dauðaþögn (2012), sló í gegn, seldist í yfir 40.000 eintökum og sat í um 400 vikur á Tónlistanum. Platan er í dag ein af söluhæstu plötum Íslandssögunnar. Síðan þá hefur Ásgeir byggt upp sterkan alþjóðlegan feril og haldið tónleika víða um heim.
Advertisement
Where is it happening?
Hafnarstræti 96, 600 Akureyri, Iceland, Hafnarstræti 96, 600 Akureyrarbær, Ísland, Akureyri, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.




