Græna gangan 2026 🌱
Schedule
Thu, 23 Apr, 2026 at 01:00 pm
UTC+00:00Location
Austurvöllur | Reykjavík, RE
Advertisement
ÞETTA ER DAGURINN SEM ALLIR ÆTTU AÐ TAKA FRÁ!!🎉🎉🎉🎉🌿🌿Dagurinn sem við göngum fyrir náttúruna og framtíðina.🌿🌿
🌞Sumardagurinn fyrsti 2026 verður tileinkaður náttúru Íslands á allan hátt! Þetta verður baráttudagur náttúrunnar sem byrjar með öflugri grænni göngu í anda kröfugöngunnar miklu 2013.
Öll náttúruverndarhreyfingin í landinu vinnur hörðum höndum að stærstu náttúrugöngu sem haldin hefur verið í fjölmörg ár.
Í anda grænu göngunnar miklu 2013
Þar sem við hvöttum ríkisstjórnina til góðra verka í umhverfismálum kröfðumst að náttúru Íslands yrði hlíft.
Öll náttúruverndarsamtökin í landinu eru að sameinast um þennan mikilvæga atburð til heiðurs náttúru Íslands í láði, lofti og legi.
Fólk safnast saman við Hallgrímskirkju klukkan 13:00 og við byrjum að ganga niður á Austurvöll klukkan 13:30. Á Austurvelli tekur á móti okkur hvatning til þess að halda náttúrunni okkar sem hæst á lofti í öllum málum því hún á undir högg að sækja og hún þarf fleiri raddir.
📢Við viljum að rödd náttúrunnar heyrist yfir holt og hæðir þennan dag og blási lífi í íslenska náttúruvernd inn í sumarið.
Advertisement
Where is it happening?
Austurvöllur, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
















