FLXS Cauda Collective
Schedule
Fri, 19 Sep, 2025 at 08:15 pm
UTC+00:00Location
Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE
Hreyfingin var alþjóðleg en náði aðallega til Vestur-Evrópu, Bandaríkjanna og Japans. Flúxuslistamenn leituðust við að afmá mörk listar og daglegs lífs. Listin átti að vera sjálfsprottin og ferlið að sköpuninni skipti meira máli en sjálf útkoman. Flúxusverk urðu gjarnan til á tilraunakenndan hátt, á skurðpunkti ólíkra listforma eða í formi svokallaðra uppákoma, þar sem gjörningar voru gjarnan fluttir í almannarýmum.
Í íslenskri listasögu má víða greina flúxusáhrif, s.s. í myndlist Dieters Roths og SÚM-hópsins og í tónleikahaldi á vegum tónlistarfélagsins Musica Nova. Á viðburðinum FLXS verður flutt blanda nýrra og eldri verka eftir tónskáld eins og Georg Brecht, Alison Knowles, Yoko Ono, John Cage og Jennifer Walshe. Þá verður frumflutt nýtt verk eftir Pétur Eggertsson. Flytjendur eru Björk Níelsdóttir, Pétur Eggertsson, Sigrún Harðardóttir og Þórdís Gerður Jónsdóttir. Verkefnið er styrkt af starfslaunasjóði listamanna.
Where is it happening?
Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland, Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays: