Erum við að kjósa fólk til að gera ekki neitt? - Opinn fundur Íbúasamtakanna Hljóðmarka
Schedule
Thu, 12 Mar, 2026 at 05:00 pm
UTC+00:00Location
Neskirkja | Reykjavík, RE
Advertisement
Boðað er til opins fundar á vegum íbúasamtakanna Hljóðmarka í tilefni sveitastjórnakosninga sem eru framundan. Hann verður haldinn fimmtudaginn 12. mars kl. 17:00–19:00 í safnaðarheimili Neskirkju og ber yfirskriftinaErum við að kjósa fólk til að gera ekki neitt?
Vangaveltur um flugvöll sem enginn kannast við að bera ábyrgð á
Á fundinum munu meðlimir Hljóðmarka lýsa ferð sinni um opinbera kerfið í leit að einhverjum sem ber ábyrgð á starfsemi Reykjavíkurflugvallar. Frá stofnun samtakanna sumarið 2024 hafa fulltrúar Hljóðmarkar fundað með fjölda ráðherra, borgar-og bæjarstjórum og embættismönnum vegna hljóðmengunnar og öryggisógnar sem margir íbúar á höfðuborgarsvæðinu upplifa frá vellinum. Eftir fjölda funda og mikil samskipti við stjórnmálafólk og stofnanir virðist enginn kannast við að bera heildstæða ábyrgð, né eiga að sinna samræmdu eftirliti með starfsemi vallarins. Þetta veldur enn meiri áhyggjum meðlima Hljóðmarkar heldur en þegar af stað var haldið. Samtökunum hefur ítrekað verið vísað í hringi og heildarmyndin er ekki traustvekjandi.
Í aðdraganda kosninga í vor er ekki von að íbúar á höfðuborgarsvæðinu velti fyrir sér hvernig standi á því að ýmis framfaramál, innviðafjárfestingar og lýðheilsumál virðast stöðvast eða hverfa í kerfinu á meðan sambærilegar borgir í nágrannalöndum eru að nútímavæðast. Liggur vandinn í íslenskri stjórnmálamenningu eða í strúktúr kerfisins? Af hverju upplifa margir höfuðborgarbúar að kjörnir fulltrúar þeirra vinni frekar að hag sérhagsmuna heldur en íbúa á svæðinu?
Fulltrúum framboða til borgar og sveitarstjórna í nágrenni vallarins verður boðið að útskýra sitt sjónarhorn á fundinum.
Nánari dagskrá verður birt þegar nær dregur.
Með bestu kveðju,
Stjórn íbúasamtakanna Hljóðmarka
Advertisement
Where is it happening?
Neskirkja, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.



















