Fríða Katrín Bessadóttir - Leiðsögn um sýninguna Í FAÐMI MARKA
Schedule
Thu Mar 12 2026 at 02:00 pm to 03:00 pm
UTC+00:00Location
Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE
Advertisement
Fríða Katrín Bessadóttir býður leiðsögn um málverkasýningu sína Í FAÐMI MARKA í Hannesarholti fimmtudaginn 12.mars kl.14. Sýningin er sölusýning og stendur til 19.mars.
Í Faðmi Marka snýst um tíma. Þann tíma sem við verjum í náttúrunni, í faðmi, í nándinni. Tímann sem við verjum í hverja einustu stroku, hvert einasta blóm, hverja einustu stund.
Fríða Katrín fetar nýja braut eftir áreiti hversdagsins og hægir á sér í formi myndverka. Hún blandar impressjónisma og púnktisma í ný verk sem einblína á tungumálið og litríka náttúru þar sem hún tvinnar saman raunveruleikanum við ímyndunaraflið. Hún opnar sig fyrir líkamlega og hugræna ferlinu sem og núvitundinni sem liggur á bakvið hverja einustu stroku. Með olíuverkum fær Fríða Katrín áhorfendur til þess að staldra við á mörkum líkama og umhverfis og dvelja þar um stund.
Fríða Katrín Bessadóttir er þverfagleg listakona sem einbeitir sér að gjörningalistinni og tengslum hennar við myndlist. Verk hennar kanna flókið samspil veruleika og skáldskapar, oft byggt á eigin reynslu og reynslu annarra. Með því að endurhugsa og endurskapa þessar frásagnir skorar hún á skynjun áhorfandans, stundum blekkir hún áhorfendur eða skilur eftir vísvitandi eyður sem bjóða þeim að klára söguna. Með BA-gráðu í myndlist og MA-gráðu í sviðslistum hefur hún þróað fjölþætta nálgun í gegnum
víðtæka sjálfstæða iðkun. Þekking hennar á bæði myndlist og sviðslist er talin gagnleg fyrir fjölbreytt samstarf og verkefni,
svo sem að skapa verk fyrir Listahátíð barna á Reykjanesi, hanna og smíða listaverk fyrir Reykjavíkurborg (Galop Náttúrunnar), sýna verk í samsýningum bæði í Danmörku og Skotlandi, flytja
verk fyrir ýmsa listamenn á Íslandi, Spáni og Rúmeníu. Auk þess að vera hluti af galleríinu KANNSKI.
Advertisement
Where is it happening?
Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland, Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.











