Eitthvað um skýin
Schedule
Thu, 23 Oct, 2025 at 06:00 pm
UTC+00:00Location
Tjarnarbíó (Reykjavík, Iceland) | Reykjavík, RE
Advertisement
Tilfinningar eru svolítið eins og skýin, sem koma og fara. Í nýjustu sóló-sýningu sinni í fullri lengd veltir danshöfundurinn, söngvarinn og dansarinn Ólöf Ingólfsdóttir þeim fyrir sér frá ýmsum hliðum í samspili söngs og hreyfingar. Mismunandi tímabil sögunnar mætast í samtali barokk aría og samtímadans, þar sem tilfinningarnar flæða tímalausar í fjölbreytni sinni; stundum glaðlegar, stundum mildar, stundum örar, stundum upphafnar. Smám saman afhjúpar „Eitthvað um skýin“ leit að friðsælum kjarna, mitt í flækjum tilverunnar, fjarri beiskum skuggaskýjum heimsins.Ólöf Ingólfsdóttir var afkastamikill danshöfundur og dansari á árunum 1993 - 2010. Á þeim tíma samdi hún fjölmörg dansverk, kom fram sem dansari og performer og sinnti kennslu, m.a. í Listaháskóla Íslands. Ólöf steig út úr sviðsljósinu um skeið og sneri sér að öðrum störfum. Einnig lagði hún stund á klassískt söngnám. Eftir margra ára fjarveru snéri Ólöf aftur á svið sem sóló listakona árið 2023 með verkið Sjö ljóð úr óskrifaðri ljóðabók. Fyrir það verk hlaut hún tilnefningar til Grímunnar sem Dansari ársins og Danshöfundur ársins.
Advertisement
Where is it happening?
Tjarnarbíó (Reykjavík, Iceland), Tjarnargata 12,Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays: