Amara nídra

Schedule

Sat, 10 Jan, 2026 at 10:00 am

UTC+00:00

Location

Helluhraun 18, 220 Hafnarfjörður, Iceland | Hafnarfjörður, GU

Advertisement
Lærðu að leiða jóga nídra!
Jóga nídra er mögnuð aðferð til að hjálpa fólki við að ná djúpri slökun. Í þessu ástandi, milli svefns og vöku, er svo mögulegt að vinna með alskonar hluti sem geta verið að plaga fólk, svo sem streitu, óöryggi og ýmislegt annað, smærra og stærra. Þar fyrir utan eru tímarnir bara yndisleg slökun og góð leið til að hjálpa fólki við að ná góðum nætursvefni.
Í þessu námi skoðum við ekki eingöngu jóga nídra eins og það er kennt í dag, heldur skoðum við einnig hefðina sem aðferðin tengist, hið tantríska laya jóga. Við skoðum hugmyndafræðina og mismunandi aðferðir, og skoðum hvernig við getum nýtt okkur fornar hugmyndir um viskugyðjurnar tíu og orkuna sem hver þeirra færir okkur. Við fáum fræðslu um taugakerfi líkamans og skoðum hvernig við getum nýtt jóga nídra til að þjálfa líkamann í að gefa eftir. Það hjálpar okkur í gegnum eril daglegs lífs og getur hjálpar okkur til að sofna fyrr og sofa betur.
Nemendur fá að spreyta sig á að semja sín eigin handrit.​​​
Þetta námskeið telst sem CE einingar hjá Yoga Alliance (50t).
​Ásta María Þórarinsdóttir, E-RYT500, sér um kennsluna að mestu, en Íris Thorlacius Hauksdóttir, líffræðingur og jógakennari, kennir um líffræði hvíldarinnar.
ATH aðeins 12 pláss í boði!

​​Kennslan fer fram þannig:
10. janúar 2026 kl 10:00 - Stuttur Zoom fundur þar sem við kynnumst og förum yfir fyrirkomulag og efni námsins. Efni afhent í formi fyrirfram upptekinna fyrirlestra sem hægt er að horfa á aftur og aftur meðan á námskeiðinu stendur.
Við hittumst svo í Helluhrauni 16:
24. - 25. janúar 2026 - Líffræði svefnsins og handritagerð
7. - 8. febrúar 2026 - Jóga nídra með sérstöku þema
28. febrúar - 1 mars 2026 - Æfingakennsla og útskrift

Kennt er kl 11:30-18:00 á laugardögunum og kl 09:00-15:30 á sunnudögunum.
Verð kr. 115.000.-​
Staðfestingargjald, kr 10.000.- skal greitt við skráningu. Staðfestingargjaldið er óafturkræft og dregst af heildarverðinu. Lokagreiðslan skal berast í síðasta lagi síðasta skráningardag, sem er miðvikudagurinn 7. janúar 2026.
Skráning fer fram gegnum [email protected].
Advertisement

Where is it happening?

Helluhraun 18, 220 Hafnarfjörður, Iceland, Helluhraun 18, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland, Hafnarfjörður, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Icon
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Amarayoga

Host or Publisher Amarayoga

Ask AI if this event suits you:

Discover More Events in Hafnarfjörður

Opnum hjarta\u00f0-Inns\u00e6i \u00e1setningur og draumar inn \u00ed \u00e1ri\u00f0 2026
Sat, 17 Jan at 11:00 am Opnum hjartað-Innsæi ásetningur og draumar inn í árið 2026

Lífsgæðasetur st.jó Hafnarfirði Suðurgata 41, 220

WORKSHOPS
N\u00fdj\u00e1rsball Papa \u00e1 \u00c6gir 220 Hafnarfir\u00f0i
Sat, 17 Jan at 10:00 pm Nýjársball Papa á Ægir 220 Hafnarfirði

ÆGIR 220

P\u00e1lmi Gunnars \u00ed B\u00e6jarb\u00ed\u00f3i
Thu, 22 Jan at 08:00 pm Pálmi Gunnars í Bæjarbíói

Bæjarbíó

EUROVISION
M\u00c1LA\u00d0 \u00cd N\u00daVITUND - Vatnslitasmi\u00f0ja me\u00f0 Andreu A\u00f0alsteins
Sat, 24 Jan at 01:00 pm MÁLAÐ Í NÚVITUND - Vatnslitasmiðja með Andreu Aðalsteins

MÓAR studio

FESTIVALS
Amara n\u00eddra
Sat, 10 Jan at 10:00 am Amara nídra

Helluhraun 18, 220 Hafnarfjörður, Iceland

HEALTH-WELLNESS BUSINESS
L\u00edkaminn gleymir engu.  L\u00edkami \u00ed sorg \u2013 losa\u00f0 um  spennu og s\u00e1rsauka
Tue, 13 Jan at 06:45 pm Líkaminn gleymir engu. Líkami í sorg – losað um spennu og sársauka

Lífsgæðasetur st.jó Hafnarfirði Suðurgata 41, 220

What's Happening Next in Hafnarfjörður?

Discover Hafnarfjörður Events