Örnámskeið um meðvirkni

Schedule

Thu Jun 11 2026 at 06:00 pm to 09:00 pm

UTC+00:00
Location

Ármúli 40 (3. hæð), 108 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE

Advertisement
Hann sagði alltaf já. Já þegar vinurinn hringdi seint á kvöldin. Já þegar pabbi þurfti hjálp aftur. Já þegar samstarfsmaðurinn bað um greiða sem hann vissi að yrði aldrei endurgoldin.
Hann sagði já við alla. Nema sjálfan sig.
Þekkir þú þetta?
Meðvirkni er eitt algengasta mynstur sem fólk ber með sér vegna sársaukans sem lífið hefur fært þeim. Lærð hegðun, oft frá æsku, þar sem við lærðum að tengja virði okkar við hversu mikið við gætum gert fyrir aðra. Gjaldið sem við greiðum fyrir það er hátt. Þreyta sem svefn lagar ekki. Einmanaleiki þrátt fyrir að vera alltaf umkringd/ur fólki. Tilfinningin um að allt sé á þínum herðum.
Þetta þarf ekki að vera svona.
Á þessu þriggja tíma örnámskeiði förum við saman í gegnum:
✦ Hvað meðvirkni er og hvaðan hún kemur
✦ Dramaþríhyrninginn og hlutverkin sem við förum í
✦ Hvernig meðvirkni hefur áhrif á sjálfsmynd og samskipti
✦ Hlutverkin í vanvirkum fjölskyldum
✦ Fyrstu skrefin í átt að breytingu
3 klukkustundir. 1 kvöld. Nýr skilningur á sjálfum/sjálfri þér.
Þú þarft ekki að deila neinu persónulegu bara mæta. Þú ferð heim með betri skilning og verkfæri til að hefja nýja vegferð.
Kennarar eru Barbara H. Þórðardóttir og Baldur Einarsson.
🗓 15. júní kl. 18:00 - 21:00
📍 LAUSNIN, Ármúli 40, 3. hæð
💰 12.000 kr.
Skráning: lausnin.is/namskeid
*Námskeið er ekki endurgreitt en inneignarnóta fæst á námskeið
Advertisement

Where is it happening?

Ármúli 40 (3. hæð), 108 Reykjavík, Iceland, Ármúli 40, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Lausnin fj\u00f6lskyldu- og \u00e1fallami\u00f0st\u00f6\u00f0
Host or PublisherLausnin fjölskyldu- og áfallamiðstöð

Ask AI if this event suits you