Öll veröldin er leiksvið - leikhústónlist Hjálmars H. Ragnarssonar

Schedule

Wed Mar 11 2026 at 08:00 pm to 10:00 pm

UTC+00:00

Location

Harpa Concert Hall | Reykjavík, RE

Advertisement
Tónleikarnir Öll veröldin er leiksvið er helguð magnaðri leikhústónlist Hjálmars H. Ragnarssonar. Flutt verður tónlist úr sýningunum Yerma (1987), Pétur Gautur (1991) og Cyrano de Bergerac (2001) sem settar voru upp í Þjóðleikhúsinu, og einnig sýningunni Himnaríki og helvíti sem var sett upp í Borgarleikhúsinu 2018.
Flytjendur eru Herdís Anna Jónasdóttir sópran, Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran, Fjölnir Ólafsson baríton, Pétur Grétarsson slagverksleikari, Steef van Oosterhoot slagverksleikari, Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari, Sif Tulinius fiðluleikari, kammerkórinn Cantoque Ensemble og Rússíbanarnir, sem koma aftur saman fyrir þetta tilefni.
Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum, miðvikudagskvöldið 11. mars kl 20.00.
Hjálmar H. Ragnarsson er eitt afkastamesta og dáðasta tónskáld íslensks samtíma.
Þar skipar leikhústónlist afar mikilvægan sess. Hér hljómar tónlist úr nokkrum leiksýningum sem Hjálmar samdi tónlistina við. Þar er viðamesti hlutinn kraftmikil og ómótstæðileg tónlist hans úr uppfærslu Þjóðleikhússins á Yermu, verki Federico Garcia Lorca í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur en sýningin sló eftirminnilega í gegn þegar hún var sett upp 1987.
Einnig verður tónlist úr sýningunum Himnaríki og helvíti, byggð á skáldverki Jóns Kalmans Stefánssonar, sett upp í Þjóðleikhúsinu árið 2018 í leikstjórn Egils Heiðars Antons Pálssonar og Pétri Gaut, uppfærslu Þjóðleikhússins frá árinu 1991 á leikriti Henrik Ibsens í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur.
Að lokum má nefna tónlist úr leikritinu Cyrano de Bergerac þar sem hljómsveitin Rússíbanarnir munu koma aftur saman, en sú uppfærsla sló ekki síður í gegn, frumsýnd í Þjóðleikhúsinu árið 2001.
Auk leikhústónlistarinnar verður flutt hið magnaða Ástarljóð mitt sem Hjálmar samdi fyrir sópran og píanó og gaf eiginkonu sinni Ásu Richardsdóttur á jólum árið 1991. Ljóðið er eftir Else Lasker Schüler í þýðingu Hannesar Péturssonar.
Að tónleikunum koma ýmsir listamenn í fremstu röð.
Sópransöngkonan Herdís Anna Jónasdóttir hefur vakið verðskuldaða athygli frá því hún kom fyrst fram á sjónarsviðið en hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins árið 2025. Hallveig Rúnarsdóttir hefur hlotið sömu verðlaun í tvígang en hún hefur sungið sig inn í hjörtu landsmanna frá því hún kom heim úr námi árið 2001. Hildigunnur Einarsdóttir er ein eftirsóttasta mezzópransöngkona landsins og hlaut einmitt Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins árið 2023. Fjölnir Ólafsson baritónsöngvari hefur starfað með fjöldamörgum tónlistarhópum hérlendis og hlaut verðlaunin Bjartasta vonin á Tónlistarverðlaununum árið 2014.
Pétur Grétarsson hefur verið farsæll tónlistarmaður og slagverksleikari um langt skeið og átti stóran þátt í sýningunni Yerma. Einnig kemur Steef van Oosterhoot slagverksleikari fram, en hann er einn af færustu slagverksleikurum þjóðarinnar. Hrönn Þráinsdóttir er einn eftirsóttasti píanóleikari og meðleikari söngvara á Íslandi. Sif Margrét Tulinius fiðluleikari hefur löngu sannað sig sem einn helsti tónlistarmaður þjóðarinnar og hún mun leika á tónleikunum. Þá má nefna Cantoque Ensemble sem er tvímælalaust einn af fremstu kórum landsins og síðast en ekki síst má nefna hina sprellfjörugu Rússíbana sem koma saman á ný eftir langt leikhlé.
Einnig kemur fram Bríet Ebba Vignisdóttir 6 ára, sem syngur upphafslagið úr Yermu. Að lokum má nefna að lesari á tónleikunum verður Tinna Gunnlaugsdóttir leikkona, en hún var einmitt í hlutverki Yermu í uppfærslunni frá 1987.
Að tónleikunum koma einnig Þórhildur Þorleifsdóttir sem listrænn ráðgjafi og Páll Ragnarsson, ljósahönnuður.
Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Hörpu og með styrk úr Tónlistarsjóði og frá Styrktarsjóði Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns.
Advertisement

Where is it happening?

Harpa Concert Hall, Epal - Harpa og Laugavegur, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Icon
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Cantoque Ensemble

Host or Publisher Cantoque Ensemble

Ask AI if this event suits you:

Discover More Events in Reykjavík

\u00cdslensku myndlistarver\u00f0launin 2026
Wed, 11 Mar at 07:30 pm Íslensku myndlistarverðlaunin 2026

Austurbæjarbíó

ART EXHIBITIONS
Opinn jafningjahittingur Tab\u00fa - mars 2026
Wed, 11 Mar at 07:30 pm Opinn jafningjahittingur Tabú - mars 2026

Mannréttindahúsið

WITCHCRAFT WINE WEDNESDAY #2
Wed, 11 Mar at 07:30 pm WITCHCRAFT WINE WEDNESDAY #2

Veghusastigur 9, 101 Reykjavík, Iceland

MEETUPS MUSIC
Powerpoint and potluck night
Wed, 11 Mar at 07:30 pm Powerpoint and potluck night

Hafnar.Haus

FOOD-DRINKS
Skyggnil\u00fdsing me\u00f0 Ragnhildi Sumarli\u00f0ad\u00f3ttur og Lindu Bj\u00f6rk Thorberg.
Wed, 11 Mar at 08:15 pm Skyggnilýsing með Ragnhildi Sumarliðadóttur og Lindu Björk Thorberg.

Skipholt 50d, 105 Reykjavík, Iceland

Morgunbollinn - Kynnumst \u00c1taki
Thu, 12 Mar at 10:00 am Morgunbollinn - Kynnumst Átaki

Sigtún 42, 105 Reykjavík, Iceland

ROLL & REST YOGA \u2013 6-Week Course (Fascia \u2022 Yin \u2022 Breathwork) Start: 12 March
Thu, 12 Mar at 10:00 am ROLL & REST YOGA – 6-Week Course (Fascia • Yin • Breathwork) Start: 12 March

Leiðin heim - Holistic healing center

WORKSHOPS HEALTH-WELLNESS
\u00d6ll ver\u00f6ldin er leiksvi\u00f0 - leikh\u00fast\u00f3nlist Hj\u00e1lmars H. Ragnarssonar
Wed, 11 Mar at 08:00 pm Öll veröldin er leiksvið - leikhústónlist Hjálmars H. Ragnarssonar

Harpa Concert Hall

MUSIC ENTERTAINMENT
Ragga Gr\u00f6ndal \u00e1 Hotel Holti
Thu, 12 Mar at 06:00 pm Ragga Gröndal á Hotel Holti

Hotel Holt, Reykjavik

MUSIC ENTERTAINMENT
Kian Soltani leikur Lutos\u0142awski
Thu, 12 Mar at 07:30 pm Kian Soltani leikur Lutosławski

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

ENTERTAINMENT CONCERTS
Monomyth Presents No Cameo - bkpm - FR\u00ddS
Thu, 12 Mar at 08:00 pm Monomyth Presents No Cameo - bkpm - FRÝS

RVK Bruggfélag Tónabíó

ART
Fimmtudagseymd \u00e1 Lemmy
Thu, 12 Mar at 08:00 pm Fimmtudagseymd á Lemmy

LEMMY

MUSIC ENTERTAINMENT
Halld\u00f3r Eldj\u00e1rn
Thu, 12 Mar at 08:00 pm Halldór Eldjárn

Óðinsgata 2, 101 Reykjavík, Iceland

CONCERTS MUSIC
T\u00f3nleikar S\u00f6ngbr\u00e6\u00f0ra \u00e1 Akranesi
Thu, 12 Mar at 08:00 pm Tónleikar Söngbræðra á Akranesi

Tónberg

Kirtan me\u00f0 Glimmer Mysterium Blissband
Thu, 12 Mar at 08:00 pm Kirtan með Glimmer Mysterium Blissband

Yogavin

Jazz \u00ed Dj\u00fapinu \/\/ Kristbj\u00f6rn Helgason
Thu, 12 Mar at 08:30 pm Jazz í Djúpinu // Kristbjörn Helgason

Veitingahúsið Hornið

MUSIC ENTERTAINMENT
Elgar & Eldfuglinn
Fri, 13 Mar at 06:00 pm Elgar & Eldfuglinn

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

MUSIC ENTERTAINMENT
Joseph Branciforte + Jozef Dumoulin: Iterae
Fri, 13 Mar at 08:00 pm Joseph Branciforte + Jozef Dumoulin: Iterae

Óðinsgata 2, 101 Reykjavík, Iceland

MUSIC ENTERTAINMENT
MYRKVI\u00d0I - S\u00d3T - CAPUT CORVI \u00e1 Lemmy
Fri, 13 Mar at 09:00 pm MYRKVIÐI - SÓT - CAPUT CORVI á Lemmy

LEMMY

What's Happening Next in Reykjavík?

Discover Reykjavík Events