Vorið vaknar í Elliðaárstöð // HönnunarMars 2026
Schedule
Sun May 10 2026 at 01:00 pm to 03:00 pm
UTC+00:00Location
Elliðaárstöð | Reykjavík, RE
🌿 Áhersla verður lögð á sköpun, samveru og upplifun þar sem gestir á öllum aldri geta tekið virkan þátt í fjölbreyttri dagskrá eða einfaldlega notið þess að vera í fallegu og söguríku umhverfi Elliðaárstöðvar.
Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi, með sérstakri áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni.
Frekari upplýsingar um verðlaunahafana má finna hér:
https://www.honnunarmidstod.is/honnunarverdlaun-islands/ver%C3%B0launahafar
Dagskrá í Elliðaárstöð:
➞ Lauf
Samhjól frá Lauf Cycles á Grandagarði 1b. Förum af stað kl. 12.00 og hjólum á léttum hraða Reykjavíkurhringinn að Elliðaárstöð.
Lauf býður svo gestum að prófa hjólin í Elliðaárstöð frá kl. 13:00 – 15:00.
➞ Fischersund
Ilmratleikur á útisvæði Elliðaárstöðvar í boði Fischersund frá kl. 13:00 - 15:00.
➞ Elliðaárstöð
Þverfaglega hönnunarteymið Terta býður upp á leiðsögn um svæði Elliðaárstöðvar þar sem gestir fá innsýn í hönnunarnálgun teymisins við uppbyggingu og mótun svæðisins. Hönnunarteymið tekur á móti gestum við Vatnsleikjagarð Elliðaárstöðvar kl. 13:30.
Vatnsleikjagarðurinn verður opinn yfir daginn þar sem börn jafnt sem fullorðnir geta buslað saman.
Öll í bátana! - barnamenningarhönnuðurinn Ninna Þórarinsdóttir leiðir nýsköpunarsmiðja fyrir börn í Gestastofu Elliðaárstöðvar frá kl. 13:00 – 15:00.
➞ Carbfix
Í tilefni af HönnunarMars býður Carbfix upp á pop-up sýninguna „Opið borholuhús Carbfix’’ Þar mætast frumleiki arkitektsins Einars Þorsteins Ásgeirssonar og lausnir Carbfix í sameiginlegri sýn: að byggja sjálfbærari heim með sköpunargáfu, hönnun og vísindum.
Kaffihúsið Elliði er opið frá kl. 11:00 – 17:00.
Where is it happening?
Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegur 6, 110 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:

















