Brúðarbúningurinn: Sýningarspjall þjóðminjavarðar og meistara í kjóla- og búningasaum
Schedule
Sun, 10 May, 2026 at 02:00 pm
UTC+00:00Location
Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland | Reykjavík, RE
Advertisement
Einn ríkulegasti kvenbúningur í sögu landsins var lengi talinn hafa glatast í skipsskaða undan ströndum Íslands árið 1809. Síðar kom í ljós að svo var ekki og árið 1963 fannst búningurinn óvænt í safni Viktoríu og Alberts í Lundúnum. Sá fundur markaði tímamót í íslenskum búningarannsóknum.Sýningin „Með sögu í farangrinum - Brúðarbúningurinn" stendur yfir frá 9. maí 2026 til 9. maí 2027. Sýningarspjallið er hluti af dagskrá HönnunarMars sem fer fram dagana 6.-10. maí 2026.
Þann 10. maí kl. 14 munu Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður og Guðrún Hildur Rosenkjær, sagnfræðingur og meistari í kjóla- og búningasaum, ræða handverkið að baki brúðarbúningnum.
Guðrún Hildur hefur um árabil helgað störf sín rannsóknum, endurgerð og miðlun íslenskra búninga. Í verkum sínum sameinar hún fræðilega heimildarýni og verklega rannsóknaraðferð þar sem hún endurgerir búninga, efni og vinnuaðferðir til að varpa nýju ljósi á þætti sem ritaðar heimildir einar ná ekki að skýra. Í samstarfi við gullsmiðinn Ásmund Kristjánsson, sem hefur endursmíðað skart búningsins, hefur hún rannsakað brúðarbúninginn í þaula og lagt fram mikilvæga þekkingu á gerð hans og efnivið.
Guðrún hefur jafnframt rannsakað sögu Guðrúnar Skúladóttur, „Blómstranna móður“, sem var annáluð fyrir framúrskarandi saumaskap og eru verk hennar varðveitt í Þjóðminjasafni Íslands, en pilsið á brúðarbúningnum á sýningunni er hennar verk. Í spjalli þeirra Hörpu mun Guðrún Hildur meðal annars segja frá helstu uppgötvunum sínum við rannsóknir á búningnum, veita innsýn í saumaskapinn sjálfan og beina sjónum að samfélagslegri stöðu Guðrúnar Skúladóttur og annarra kvenna á hennar tíma.
Sýningarspjallið fer fram á íslensku.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og aðgangi á alla viðburði og sýningar safnsins gegn framvísun kortsins.
Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.
Advertisement
Where is it happening?
Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland, Suðurgata 41, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.








