Snorri Helgason - Borgartún útgáfutónleikar / album release show
Schedule
Thu, 13 Nov, 2025 at 08:00 pm
UTC+00:00Location
Austurbæjarbíó | Reykjavík, RE
Advertisement
Borgartún er ný plata Snorra Helgasonar og hljómsveitar hans Snákanna sem komin er út á öllum helstu streymisveitum. Platan hefur að geyma lög eftir Snorra sem eiga það sameiginlegt að fjalla um íslenska hversdaginn, fólkið sem hér býr og þeirra vonir og drauma. Fólk eins og sæta en persónuleikalausa fótboltastrákinn Aron sem skilur ekki af hverju kærusturnar dömpa honum alltaf, Signýju sem dúxaði í öllu og tók öll “réttu” skrefin en finnst líf sitt innantómt í glergímöldum Borgartúns og unglingarnir Torfi og Unnur sem fella hugi saman í vinnuskúr hjá bæjarvinnunni.
Allir þessir karakterar og fleiri til birtast í Borgartúni Snorra Helgasonar og verða með okkur á sviðinu í Austurbæjarbíói 13. nóvember þegar Snorri og Snákarnir ásamt góðum gestum ætla að fagna útgáfunni, spila plötuna í gegn í bland við gamalt og gott stöff.
Advertisement
Where is it happening?
Austurbæjarbíó, Snorrabraut 37, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.











