Slökun og Endurheimt: rólegt námskeið með Urði
Schedule
Thu, 16 Jan, 2025 at 05:00 pm
UTC+00:00Location
Skeifan 7,2nd and 3rd floor, 108 Reykjavík, Iceland | Reykjavík, RE
Advertisement
Streita er lífsnauðsynleg en of mikið álag getur veikt ónæmiskerfið og haft neikvæð áhrif á andlega líðan. Líkaminn þarf hvíld og slökun til að úrvinnsla í taugakerfinu geti átt sér stað. Á námskeiðinu Slökun og Endurheimt er lögð áhersla á að tengja við líkamann og róa taugakerfið. Farið verður yfir áhrif og afleiðingar streitu. Námskeiðið stendur í 6 vikur og verður á fimmtudögum frá 17:00 - 19:00. Námskeiðið hefst 16. janúar og lýkur 20. febrúar.
Við notum jóga til að virkja sefkerfið og róa drifkerfið og þar með auka streituþolið okkar. Þú lærir einfaldar en áhrifaríkar jógastöður og í lok hvers tíma leiðir Urður Jóga nidra.
Námskeiðið er byggt upp á Yin yoga og Yoga nidra. Yin jóga er hægt jóga sem vinnur með dýpri vefi líkamans, bandvef, sinar, liðamót og orkubrautir. Flestar Yin stöður eru sitjandi eða liggjandi stöður. Jóga nidra er liggjandi leidd hugleiðsla og djúpslökun.
Helstu upplýsingar:
FYRIR HVERJA: Þá sem vilja losu um streitu og finna slökun.
TÍMABIL: 16. janúar til 20. febrúar
TÍMASETNING: fimmtudagar kl. 17:00 - 19:00 (120 min)
HVAR: Yoga Shala Reykjavík, Skeifan 7.
VERÐ: 29.900 kr.
NÁNAR: yogashala.is/slokun-og-endurheimt
Slökun og Endurheimt með Urði hentar öllum, en sérstaklega þeim sem þurfa að minnka álag og streitu í lífi sínu, fólk sem er að kljást við kulnun eða annan heilsubrest og eru sífellt að reka sig á hvassar brúnir daglegs lífs.
Advertisement
Where is it happening?
Skeifan 7,2nd and 3rd floor, 108 Reykjavík, Iceland, Skeifan 7, 108 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays: