Nærandi slökun og djúp ró
Schedule
Thu, 19 Mar, 2026 at 05:15 pm
UTC+00:00Location
Síðumúli 6, 108 Reykjavíkurborg, Ísland | Reykjavík, RE
Advertisement
Mig langar að bjóða þér að koma í ferðalag í gegnum öndun þar sem áhersla er á djúpa og góða slökun.Langar þig að slaka virkilega á – ekki bara í líkamanum, heldur í sjálfri sál þinni?
Við lifum í heimi þar sem hraðinn ræður, áreiti er stöðugt og margir hafa gleymt hvernig það er að slaka alvöru á.
Í þessu öndunarferðalagi færðu tækifæri til að stíga út úr daglegu amstri og tengjast kyrrðinni sem býr innra með þér – hinni djúpu, nærandi kyrrð sem er alltaf til staðar, ef við gefum okkur tíma til að mæta henni.
Við opnum athöfnina með því að drekka saman (fyrir þá sem það vilja) bolla af hreinu cacao frá Venezuela.
Í ferðalaginu leggjum við áherslu á:
🌬 Meðvitaða, leidda öndun
🌌 Tónheilun, kyrrð og mjúka nærveru
💫 Rými til að sleppa tökum og fylla á
Þetta er ferðalag fyrir alla – hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í öndun eða ert reyndur ferðalangur.
Þú þarft ekkert að kunna – einungis að mæta og treysta.
Með því að gefa þér leyfi til að slaka djúpt á getur þú :
Endurstilt taugakerfið
Róað hugann
Vakið innri frið
Jafnvel upplifað djúpa innsýn og létti.
Koma í þægilegum fötum.
með vatnsbrúsa.
með opið hjarta.
Mæli ég einnig með því að vera ekki búin að borða þunga máltíð fyrir viðburðinn.
Reikna má með uþb 1,5 klst í viðburðinn.
Húsið er oðið frá kl 17:00-17:15
Tíminn kostar 5 þúsund kr
Þið tryggið ykkur pláss með því að ganga frá greiðslu inn á 550825-0310
517-26-220
A.T.H ef forföll eru boðuð og minna en 24 klst eru í viðburðinn þá er plássið ekki endurgreitt nema að það náist að selja það öðrum
10 pláss eru í boði.
Ef þú þig langar að koma en átt ekki peninga núna sendu mér línu og við finnum lausn á því.
Sendu endilega skilaboð fyrir frekari upplýsingar.
Vonast til að sjá þig 👊
Mikilvægt er að skrá sig á viðburðinn sem og í gegnum þennan link
https://www.nirvanaondun.com/events/naerandi-slokun-og-djup-ro-2
Advertisement
Where is it happening?
Síðumúli 6, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Síðumúli 6, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.



















