Kynbundið ofbeldi í íslenskum þjóðsögum
Schedule
Fri, 14 Mar, 2025 at 12:00 pm
UTC+00:00Location
Oddi O-101, Háskóli Íslands, Sæmundargötu 10, Reykjavík | Reykjavík, RE
Advertisement
Í erindinu greinir Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur frá rannsóknum sínum á birtingarmyndum kynbundis ofbeldis í íslenskum þjóðsögum frá 19. og 20. öld.Kynbundið ofbeldi er sjaldan miðpunktur sagna en það má engu að síður finna í þjóðsagnasöfnum, bæði heimilisofbeldi og kynferðisofbeldi. Í erindinu verður sjónum meðal annars beint að því í hvernig sögum ofbeldi af þessu tagi birtist helst, hvaða tilgangi þessar sögur gætu hafa þjónað, hvað þær geta sagt okkur um kynjuð valdatengsl og hvaða áhrif það hefur hver segir söguna og hverjum.
Fyrirlesturinn verður tekinn upp og upptaka aðgengileg á vefsíðu Þjóðarspegilsins:
https://thjodarspegillinn.hi.is/vidburdir/
Advertisement
Where is it happening?
Oddi O-101, Háskóli Íslands, Sæmundargötu 10, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
