Karamazov-bræðurnir: Námskeið í Neskirkju
Schedule
Wed, 14 Jan, 2026 at 07:30 pm
UTC+00:00Location
Neskirkja | Reykjavík, RE
Advertisement
Karamazov-bræðurnirNámskeið undir leiðsögn Gunnars Þorra í samstarfi við Neskirkju
Karamazov-bræðurnir eftir Fjodor Dostojevskí er eitt af höfuðverkum heimsbókmenntanna. Á námskeiðinu mun fræðimaðurinn og þýðandinn Gunnar Þorri Pétursson ljúka upp undraheimum þessarar miklu skáldsögu og kryfja til mergjar í lifandi samræðu við gesti þær áleitnu spurningar sem Dostojevskí spyr um ástina, sálardjúp mannsins, tilvist Guðs, framtíð Rússlands og alls mannkyns.
Gunnar Þorri hefur tvívegis hlotið Íslensku þýðingarverðlaunin fyrir þýðingar sínar á rússneskum bókmenntum, hann gerði þáttaröðina Rús fyrir Ríkisútvarpið og hefur haldið úti þéttsetnum námskeiðum á
Hótel Holti um rússneskar bókmenntir um árabil. Námskeið um Karamazov-bræðurna hefur verið haldið í tvígang og í bæði skiptin seldist upp.
Námskeiðið er á sérstöku forsölutilboði — 44.500 kr. — fram til 14. desember og jafnframt er boðið upp á 15% fjölskylduafslátt — 37.800 kr. — fyrir foreldra, maka eða börn gesta á námskeiði. Þá má benda á að námskeiðið er styrkhæft hjá ýmsum stéttarfélögum.
Námskeiðið verður kennt fimm miðvikudagskvöld í janúar og febrúar (14.1, 21.1, 28.1, 4.2. og 11.2) í safnaðarheimili Neskirkju og hefst kl. 19:30.
Athugið að námskeiðið er fyrir lærða og leika, gestir þurfa ekki að mæta undirbúnir og Karamazov-bræðurnir verða lesnir í hæfilegum skömmtum á tímabilinu sem námskeiðinu stendur yfir.
Missið ekki af þessu einstaka tækifæri.
Skráning er á: [email protected]
Advertisement
Where is it happening?
Neskirkja, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.




