Hvað ræður í lyfjamálum? Vísindin, peningarnir eða pólitíkin?
Schedule
Thu, 30 Oct, 2025 at 02:00 pm
UTC+00:00Location
Hilton Hotel Reykjavik Nordica | Reykjavík, RE
Advertisement
AFMÆLISRÁÐSTEFNA - ALLIR VELKOMNIR - EKKERT RÁÐSTEFNUGJALD - SKRÁNINGARHLEKKUR HÉR NEÐST Í TEXTA• Heilbrigðiskerfið og lyfjaútgjöld – köstum við krónunni en spörum aurinn?
• Eru lyfjaútgjöld hins opinbera stjórnlaus?
• Fjárfestum við í heilsu eða skerum við niður óþarfa kostnað?
• Borgum við meira en hin Norðurlöndin fyrir lyfin okkar?
• Hvernig nýtum við sparnaðinn sem skapast af ódýrari meðferð?
• Skapast svigrúm til að nýta nýju sérhæfðu meðferðarúrræðin?
Við eigum tuttugu ára afmæli í lok október og viljum af því tilefndi efna til ráðstefnu og opins samtals um fjármögnun í heilbrigðiskerfinu með áherslu á lyfin. Við ætlum að reyna að velta fyrir okkur spurningum eins og hér fyrir ofan. Til þess að fara yfir þessi álitaefni höfum við fengið til liðs við okkur glæsilegan hóp fyrirlesara og álitsgjafa og kynnum því með stolti eftirfarandi dagskrá:
14:00 Setning ráðstefnu.
Ragnhildur Reynisdóttir, formaður stjórnar Frumtaka.
14:10 Kynning dagskrár og fundarstjórn
Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Frumtaka
14:15 Ávarp ráðherra
Alma Möller, heilbrigðisráðherra.
14:25 20 ár, 20 staðreyndir og hvað svo?
Gylfi Ólafsson, heilsuhagfræðingur.
15:10 Kaffihlé
15:40 Já hvað ræður?
Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins
15:55 Já hvað ræður?
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands
16:10 Umræður undir stjórn Ólafar Skaftadóttur:
Ásamt framsögumönnum taka þátt Dagur B. Eggertsson, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, formaður velverðarnefndar Alþingis og Ólafur Adolfsson, varamaður í velferðarnefnd Alþingis.
16:50 Ráðstefnuslit
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest! Aðgangur ókeypis og léttar veitingar í boði.
Vinsamlegast skráðið ykkur hér: https://forms.office.com/e/V6bXFCCSaK
Frumtök eru samtök frumlyfjaframleiðenda á Íslandi. Samtökin vilja með málflutningi sínum stuðla að framþróun íslenska heilbrigðiskerfisins og efla og dýpka umræðu um lyfjamál.
Advertisement
Where is it happening?
Hilton Hotel Reykjavik Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays: