HUGVÍKKANDI REYNSLA - UNDIRBÚNINGS OG EFTIRVINNSLU FUNDUR

Schedule

Thu, 02 Jul, 2026 at 07:30 pm

UTC+00:00
Location

Lífspekifélagið | Reykjavík, RE

Advertisement
HUGVÍKKANDI REYNSLA - UNDIRBÚNINGS OG EFTIRVINNSLU FUNDUR
Hugvíkkandi og Septíma bjóða til undirbúnings og eftirvinnslu fundar hugvíkkandi reynslu í Lífspekifélaginu.
Fundurinn er öruggt og styðjandi rými þar sem við hittumst til að ræða og ígrunda hugvíkkandi upplifanir.
Á fundinum getur þú m.a. rætt:
• Eftirvinnslu: hvernig þú vinnur úr reynslu sem þegar hefur átt sér stað og fellur hana inn í daglegt líf.
• Undirbúning: hvernig nálgast má hugvíkkandi ferð með öryggi, meðvitund og skýrari ásetning.
• Almennar spurningar: hvað sem þú vilt ræða tengt hugvíkkandi reynslu.

UPPBYGGING FUNDARINS
Fundurinn er í deilingarhrings formi, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að deila ef þeir vilja, en enginn er skyldugur til að tala. Ekki er farið í hefðbundinn hring, heldur er rýmið opið í „pop-up“ formi, þannig að hver og einn getur stigið fram þegar hann finnur fyrir þörf.
Aðeins einn talar í einu. Sá sem deilir fær óskertan fókus hópsins, og enginn grípur fram í eða leggur orð í belg á meðan. Þegar viðkomandi hefur lokið máli sínu má spyrja hvort hann óski eftir endurgjöf eða ráðleggingum.

TRÚNAÐUR
Allt sem fram kemur á fundinum er í trúnaði. Þú mátt deila þinni eigin reynslu eftir fundinn, en það sem aðrir deildu fer ekki lengra.

LEIÐBEININGAR FYRIR ÞÁTTTAKENDUR
1. Trúnaður. Það sem deilt er í hópnum helst í hópnum.
2. Virk hlustun. Leyfðu öðrum að tala ótruflað. Þögn er líka velkomin.
3. Haltu þig við efnið. Deildu því sem tengist hugvíkkandi reynslu, undirbúningi eða eftirvinnslu hennar.
4. Engin upphafning eða hvatning til notkunar. Við leggjum ekki áherslu á magn, styrkleika eða hversu „tryllt“ ferðin var, heldur á merkingu og eftirvinnslu.
5. Engin dómgæsla. Leiðir allra eru einstakar. Sýnum samkennd í stað gagnrýni.
6. Frjáls þátttaka. Enginn er skyldugur til að tala.
7. Þetta er ekki sálfræðimeðferð heldur jafningjastuðningur. Virðum mörkin sem hópurinn setur.

TÍMI, STAÐUR OG TÍÐNI
• Staður: Salur Lífspekifélagsins.
• Lengd: Um það bil ein og hálf klukkustund, opið spjall eftir fundinn.
• Tíðni: Almennt fyrsta fimmtudag hvers mánaðar. Þessi fyrsti fundur er undantekning.

VERÐ
• 1.000 kr. fyrir meðlimi Hugvíkkandi eða Lífspekifélagsins.
• 2.000 kr. fyrir aðra.

HVERJIR ÆTTU AÐ MÆTA?
• Þeir sem vilja vinna úr eða skilja eigin hugvíkkandi reynslu.
• Þeir sem eru að undirbúa ferð og vilja fá speglun eða ráð.
• Þeir sem vilja hámarka líkurnar á jákvæðri og uppbyggilegri útkomu af hugvíkkandi reynslu.
• Þeir sem vilja læra í gegnum hlustun og samveru.

HVAÐ ER UNDIRBÚNINGUR OG EFTIRVINNSLA HUGVÍKKANDI REYNSLU?
Undirbúningur og eftirvinnsla (e. integration) er ferlið þar sem við vinnum úr og fellum hugvíkkandi reynslu inn í daglegt líf. Reynslan sjálf er aðeins fyrsta skrefið. Það sem gerist í kjölfarið, hvernig við skiljum hana, vinnum með tilfinningar og innsýn og breytum venjum, ræður oft mestu um hvort reynslan verður merkingarbær og uppbyggileg til lengri tíma.

MARKMIÐ FUNDARINS
• Að skapa rými þar sem hægt er að tala um ólík sjónarhorn hugvíkkandi reynslu: hið dulræna og andlega, heilun og úrvinnslu áfalla, og hvaða aðra þætti sem reynslan kann að snerta.
• Að styðja hvert annað í að gera hugvíkkandi reynslu merkingarbæra og uppbyggilega í lífinu.
• Að draga úr einangrun þeirra sem eiga sér hugvíkkandi reynslu og veita þeim samfélag og speglun.
• Að efla skaðaminnkun, öryggi og ábyrga nálgun í kringum notkun hugvíkkandi efna.
• Að miðla þekkingu milli þátttakenda. Gefa þeim reynsluríkari tækifæri til að deila, og skapa öruggt umhverfi fyrir þá sem eru að taka fyrstu skref.
• Að styðja við upplýsta umræðu og minnka ótta og fordóma um hugvíkkandi efni og reynslu.

HVER LEIÐIR FUNDINN?
Frímann Kjerúlf og Vilhjálmur Hjaltalín leiða fundinn.
Frímann Kjerúlf er formaður Hugvíkkandi. Hann er í meistaranámi í hugvíkkandi-studdri meðferð (psychedelic-assisted therapy) í Ecstatic Mysticism braut Ubiquity University og með mikla reynslu af vinnu með hugvíkkandi efni.
Vilhjálmur Hjaltalín er varaformaður Hugvíkkandi. Hann er MAPS menntaður MDMA meðferðaraðili og hefur mikla reynslu af meðferðarvinnu, m.a. hópavinnu á Landspítalanum. Hann er með háskólapróf í sálfræði.

ÁÐUR EN ÞÚ KEMUR
Hugleiddu hvort þú viljir deila reynslu eða spurningu, og mundu að það getur verið jafn lærdómsríkt að hlusta í þögn og að deila í orðum.

UM HUGVÍKKANDI
Hugvíkkandi vinnur að því að efla þekkingu, auka skilning og stuðla að ábyrgri notkun hugvíkkandi efna á Íslandi í þágu einstaklinga, meðferðaraðila og samfélagsins alls. Félagið er málsvari frelsis, fræðslu og fagmennsku á sviði hugvíkkandi meðferða og rannsókna.
Vefur: https://hugvikkandi.org/
Netfang: [email protected]
Advertisement

Where is it happening?

Lífspekifélagið, Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Hugv\u00edkkandi
Host or PublisherHugvíkkandi

Ask AI if this event suits you